Biblían segir að hinir síðustu verði fyrstir en óhætt er að fullyrða að það á ekki við um þá sem vilja grípa íslensk ferðatilboð. Ferðaskrifstofan Heimsferðir býður nú forsjálum að kaupa flug aðra leiðina til Alicante á Spáni á 19.900 krónur og gildir það allt næsta sumar.
Það er skrambi gott boð þó einungis sé um að ræða 300 fyrstu sætin næsta sumarið og reyndar bætist flugvallargjald ofan á tilboðsgjaldið. Hins vegar er verð aðra leiðina til Alicante nær því að vera milli 30 og jafnvel 40 þúsund krónur aðra leiðina að jafnaði þegar nær líður að sumri.
Tryggja má sig fyrir slíku og bóka flugið núna. Óvíst er um tíðni flugferða til Alicante með Wow Air á þessari stundu og ekki verða neinar ferðir í boði með Iceland Express.
Þá eru engar ferðir áætlaðar til þessa vinsæla áfangastaðar næsta sumar með Icelandair samkvæmt vef þess flugfélags.
Heimasíða Heimsferða hér.






