Andlit mót sólu lengur en fimm mínútur í nóvember, desember eða janúar? Þá þarftu að skottast erlendis. Þá margt vitlausara en bóka hjá British Airways frá London til Abú Dabí.

Jú, víst eru sirka áttatíu þúsund staðir á jarðríki merkilegri og skemmtilegri en Abú Dabí sem tilheyrir Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en þar skín sólin þokkalega mikið yfir vetrarmánuðina á norrænum slóðum og ekki sakar ef þangað er komist sæmilega ódýrt.

Sem er einmitt hægt þessi dægrin. British Airways að bjóða fargjöld fram og aftur í nóvember, desember og eilítið fram í janúar á næsta ári fram og aftur til London allt niður í 48 þúsund krónur. Príma verð fyrir tólf til fjórtán klukkustunda flugferð ef þú spyrð okkur hér. Í þokkabót má komast héðan til London og heim aftur niður í 12 þúsund krónur með tilteknum lággjaldaflugfélögum.

Nánar.