Dabbadona! Rúmu hálfu ári eftir fall Wow Air taka sig saman nokkrir fyrrum yfirmenn þess flugfélags og koma á fót nýju flugfélagi. Flugfélagið Play var kynnt til sögunnar í dag. Það á að vera „raunverulegt íslenskt lággjaldaflugfélag.”

Rauður einkennislitur á að tákna eldmóð starfsmanna flugfélagsins.

Vonandi óhætt að óska forsvarsmönnum Play til hamingju með áfangann og ekki síður landanum öllum því fargjöld til vinsælla áfangastaða erlendis hafa hækkað verulega frá því að Skúli Mogensen brotlenti Wow Air snemma í vor.

Þetta er töffaraskref að taka því ef lággjaldaflugfélag ætlar að greiða íslensk laun og nota íslenskt starfsfólk er flugfélagið strax komið í mínus áður en fyrsta rellan hefur sig til flugs. Laun starfsmanna þeirra erlendu lággjaldaflugfélaga sem fljúga til og frá landinu eru allmikið lægri en gengur og gerist hérlendis. Meðallaun í Ungverjalandi, þaðan sem starfsfólk Wizz Air kemur, eru 2,8 milljónir. Meðallaun á Spáni, þaðan sem starfsfólk Vueling kemur, eru 4,9 milljónir. Meðallaun á Íslandi 2018-2019 námu 7,8 milljónum króna.

Yfirborðskennd fyrstu skref

Þoka og yfirborðskennd er ekki eitthvað sem nýtt flugfélag ætti að koma á framfæri. Það er samt einmitt það sem liggur fyrir nú þegar forsvarsmenn hafa boðað nýtt flugfélag.

Í fyrsta lagi þetta:

„Ein­kenn­islit­ur nýja flug­fé­lags­ins er rauður. „Ástæðan fyr­ir því að við völd­um þenn­an rauða lit er ein­fald­lega ástríðan sem fylg­ir þess­um nýja lit,“ sagði Arn­ar Már Magnús­son for­stjóri.

Einmitt það! Fyrir það fyrsta er rauður ekki nýr litur. Sá fylgt mannkyni um ár og allnokkrar aldir og ekki hefur sá sem hér ritar orðið var við extra ástríðufulla þjónustu starfsfólks Norwegian, Airberlin eða Air Asia sem öll brúka eða brúkuðu rauðan einkennislit. Með öðrum orðum yfirborðskennd þvæla.

Og svo þetta:

„Fjármögnun félagsins sé lokið, 80 prósent komi frá breskum fjárfestingarsjóði og tuttugu prósent frá Íslenskum verðbréfum. Arnar vill ekki gefa upp eigið fé. „Það verður gefið upp og það er ríkulegt.“

Breskur fjárfestingarsjóður og íslenskur verðbréfasali. Eigið fé nýs flugfélags sé ekki gefið upp fyrr en það hentar. Traustvekjandi ekki satt?

Hvar er Mogensen?

Allnokkrir miðlar greindu frá því þennan daginn að Skúli Mogensen, eigandi og forstjóri Wow Air, hefði sent forsvarsmönnum nýs flugfélags heillaskeyti. Gott og blessað með það. En veltir enginn vöngum yfir að allt þetta fyrrverandi starfsfólk herra Mogensen hafði engan áhuga að hafa kauða með við stofnun nýs flugfélags? Með öðrum orðum; ef Mogensen var svona súperklár og vinalegur væri það formsatriði að draga hann með í pakkann. Svo er ekki.

Áfangastaðir leyndó?

Og hvers vegna eru áfangastaðirnir leyndó? Fleiri hundruð þúsund króna í kynningu á nýju flugfélagi en enginn nokkru nær um hugsanlega áfangastaði né heldur um hugsanleg verð á flugferðum. Ekki nokkur fjölmiðill spurði út í fargjöld Play.

Erum við að tala um fargjöld á pari við Norwegian, easyJet, Wizz Air eða Vueling? Eða verða fargjöldin meira á pari við Icelandair? Enginn veit.

Engu að síður þarf ekki Sherlock Holmes til að vita gróflega hvert Play flýgur ef flugfélagið ætlar að lifa af fyrstu mánuðina. Alicante á Spáni er lágmarkið. Barselóna á Spáni ekki óvitlaus áfangastaður heldur. Svo má setja pening á að Köben og London verða í boði.

Break a flight leg

Fyrsta kynning hefði getað verið betri en fall er Fararheill.is og við óskum Play velfarnaðar. Þó stöku spekingar í flugheimum hafi sagt vonlaust að halda úti íslensku lággjaldaflugfélagi erum við því ósammála. Það þarf bara að tékka gredduna og gera ekki áætlanir sem ganga út á endalausa uppleið eins og Pálmi Haraldsson og Skúli Mogensen voru sekir um.

Þá má Play líka gæta sín á því að ólíkt því þegar Wow Air tók til starfa þá er niðursveifla í efnahagskerfum heimsins alls þessi dægrin og sú niðursveifla á eftir að versna. Ólíkt Wow Air, sem hóf starfsemi allt var botnfrosið og eina leiðin var upp verður Play að eiga við almennan niðurgang svona fyrstu misserin hið minnsta.