Séu einhverjir Íslendingar á ferð um Tævan á næstunni er hægt að gera vitlausari hluti en kíkja á Modern Toilet. Það er einn vinsælasti veitingastaður landsins.
Hljómar reyndar ekki spennandi enda eiga einhvern veginn orðin klósett og veitingastaður lítið sameiginlegt.
Þetta er engu að síður sá veitingastaður í landinu sem hvað hraðast vex og virðist fólk ekki leggja fyrir sig að éta mat upp úr klósettskálum og sitja bókstaflega á klósettum við máltíðina. Þvert á móti. Í landinu þykir þetta hinn skemmtilegasti hlutur. Slagorð staðarins þykir líka móðins: go pee-pee or go poo-poo.
Modern Toilet Restaurant selur reyndar ágætan mat en gestir sitja á klósettum við snæðing og borðið sjálft getur verið vaskur eða baðker jafnvel og allur matur er afgreiddur í klósettskálum. Vinsælasti eftirrétturinn á staðnum er brúnn súkkulaðiís.
Merkilegt nokk eru eigendurnir svo ánægðir með viðtökurnar að útibú hafa verið opnuð á meginlandinu í Kína, Hong Kong og Japan og eru nú einir átján slíkir slíkir staðir starfandi í suðaustur Asíu.
Heimasíðan hér ef einhver er heitur að prófa.





