Það vita þeir sem heimsótt hafa Kína síðustu misserin að þar þykir það helber afdalaháttur að greiða með kreditkortum og nánast óhugsandi að greiða með peningum. Hér enginn maður með mönnum nema greiða fyrir hlutina með símanum og sums staðar er einfaldlega ekki tekið við öðruvísi greiðslum.

Loks hægt að brúka símgreiðslur á ferð um Kína. Skjáskot

Þetta hefur verið töluvert vandamál fyrir erlent ferðafólk í Kína. Ekki síst vegna þess að velflest vestræn greiðsluöpp eru bönnuð í Kína. Síminn Pay, Aur eða Kass ekki alveg að gera sig í Kínaveld né nokkur önnur vinsæl slík öpp sem vesturlandabúar nota gjarnan.

Neibbs. Til að greiða fyrir vöru eða þjónustu í Kína gegnum símann þarf kínverskt greiðsluapp.

Hingað til hefur það verið vesen frá A til Ö. Til að fá aðgang að Alipay eða WeChatPay, sem eru risarnir í greiðslumiðlun í Kína, hefur fólk þurft að vera með bankareikning í kínverskum banka og til þess hefur fræðilega þurft að vera með fasta búsetu í landinu.

En ekki lengur.

Loks gefst ferðafólki færi á að nota snjallsímaappið til að greiða fyrir hlutina og til þess þarf aðeins vegabréfsnúmer, kreditkort og kortanúmer. Með þetta í farteskinu geta áhugasamir nú loks notað greiðsluapp Alipay, lagt inn peninga beint af erlendum kredit- eða debitkortum og notað svo símann til greiðslu eins og 99 prósent Kínverja.

Vefur Alipay hér. Þar þarf að stofna aðgang og þá gefst kostur á að tengja erlent kort við greiðsluapp fyrirtækisins.