Það er líklega ekki svo algengt að íslenskir ferðamenn hafi gegnum tíðina vanið komur sínar á hinn virta og fokdýra veitingastað Plaza Athénée í París sem er flaggstaður þess matreiðslumanns sem hlotið hefur flestar Michelin stjörnur um ævina.

Plaza Athénée er á jarðhæð samnefnds hótels og regla fremur en undantekning að fyrir utan sé bifreiðar sem kosta tugmilljónir króna. Mynd Carspotter

Plaza Athénée er á jarðhæð samnefnds hótels og regla fremur en undantekning að fyrir utan sé bifreiðar sem kosta tugmilljónir króna. Mynd Carspotter

Sá er auðvitað Alain Ducesse sem nú rekur staði um víða veröld en það var hér á þessum stað í París sem karlinn skapaði orðspor sitt sem einn fremsti kokkur heims. Fyrir vikið hefur máltíð hér aldeilis kostað skildinginn.

Stórtíðindi gerðust á þessum veitingastað fyrir skömmu. Altént stórtíðindi í þessari sælkeraborg sem París er. Ducasse gjörbreytti matseðli staðarins á einni nóttu og nú fæst þar ekki lengur neitt kjötmeti. Þetta er orðinn grænmetisstaður.

Það þykir mörgum sælkerum hið versta mál enda á hráfæði og grænmetisfæði erfitt uppdráttar í Frakklandi. Kannski Ducasse geti breytt því með Plaza Athénée. Enginn skyldi þó halda að þó matseðillinn breytist að verð á matinum breytist með. Hér er til dæmis hægt að panta grænmetisdisk beint úr garði Versala með steiktum heslihnetum fyrir átján þúsund krónur. Og þykir lágt verð.