Ferðamálastofa, stjórnstöð ferðamála, Ferðamálaráð, Ferðamannasamtök Íslands, Ferðamálastofa Akureyrar, Íslandsstofa, Samgöngustofa og svo videre og videre.

Allar þessar rándýru stofnanir til að fjölga ferðamönnum til landsins og svo skýtur Ísavía þeim öllum ref fyrir rass sísona. Skjáskot
Þúsund vellaunaðir púkar á ríkisfjósbitanum hjá fjölda stofnana sem eiga að sjá um að erlendir ferðamenn sæki farsæla Frón heim í tonnavís, elski land og þjóð, komi sem oftast og eyði eins miklum fjármunum og framast er hægt að kreista út úr útlendingunum án þess að lögregla sé kölluð til.
Með tilliti til þeirra milljarða króna sem Kata Jak eyðir í allar þessar fjárfreku stofnanir sem ekki þurfa að standa skil á einu né neinu kemur ein frétt dagsins verulega á óvart. Þessi frétt hér:
Hollenskt flugfélag hefur flug til Íslands
Bæði RÚV og Mbl gera málinu skil og það án þess að gera annað en birta fréttatilkynningu frá Ísavía. Príma fréttamennska í landinu sem endranær en látum það liggja milli hluta í bili. Við höfum tvær aðrar athugasemdir við málið hér:
A) Gefið er í skyn að Transavia hafi aldrei áður flogið til Íslands. Vitum ekki betur hér en þetta hollenska/franska lággjaldaflugfélag hafi einmitt flogið mjög reglulega hingað til lands síðustu árin en reyndar frá París en ekki Amsterdam. Við hér mælt með hræbillegu flugi þeirra um árabil.
B) Fram kemur að Ísavía hafi haft samband við Transavia og önnur flugfélög strax í kjölfar falls Wow Air til að freista þess að fá aðra aðila til að fylla í skarð flugfélags herra Mogensen og hjá Transavia hafi forráðamenn strax gripið gæs á lofti.
Gott og blessað. Nema hvað það er alls ekki á forræði Ísavía að freista þess að fá erlend flugfélög til landsins. Það er á forræði þeirra sex þúsund ferðamálastofnana sem ríkið heldur úti.
Skoðum aðeins opinbert hlutverk Ísavía samkvæmt yfirlýsinga á vef þeirra sjálfra:
HLUTVERK: Isavia er þjónustufyrirtæki í flugvallastarfsemi og flugleiðsögu og leggur grunn að flugsamgöngum Íslands. Við vinnum saman að því að vera hluti af góðu ferðalagi innanlands sem utan.
Flugvallarstarfsemi, flugleiðsögn og grunnur að flugsamgöngum ÍSLANDS fyrir utan þetta yfirborðskennda rugl um að vera hluti af góðu ferðalagi. Ekkert hér sem segir að Ísavía eigi að hringja út um allar trissur og freista erlendra flugfélaga. Slíkt er einfaldlega á forræði allt annarra stofnana.
Ekkert að því per se að Ísavía véli sitt fólk í að draga nýja aðila að Leifsstöð en ef þetta er ekki flóknara en svo að henda í eitt símtal hvað erum við þá að borga hinum mýmörgu ferðamálastofnunum fyrir? Kannski óhætt að leggja niður eins og ALLAR AÐRAR ferðamálastofnanir landsins og spara svona tíu milljarða eða svo…







