Sorglegt hvað mörg innlend fyrirtæki eru gegnsýrð af græðgi. Fyrirtæki á borð við Heimsferðir Andra Más Ingólfssonar.

Fimm klukkustunda fyrirvari á túr til Kanarí. En afsláttur? Ekki til að tala um. Skjáskot
Þetta hér til hliðar kom í póstinum um hálf-tíu leytið þennan morguninn:
„Vegna forfalla losnuðu örfá sæti til Kanarí í dag 2-13 apríl, brottför kl 15.20, hægt er að bóka flug og hótel hér…. Verð á mann frá 115.675 m.v. 2 fullorðna.”
Einhver gæti haldið að þegar ferðaskrifstofa situr allt í einu uppi með óseld sæti þegar klukkustundir eru í brottför að umrædd ferðaskrifstofa myndi nú bjóða einhvern súperdíl á þeirri ferðinni. Ekki hvað síst með tilliti til þess að ferðaskrifstofan var búin að selja öll sæti í umrædda ferð og fá greitt fyrir að fullu. Enda kveða reglur Heimsferða á um að engin er endurgreiðslan ef minna en fjórir sólarhringar eru til brottfarar. Tap Heimsferða er því EKKERT jafnvel þó enginn fáist til að fylla forfallasætin.
En í stað þess að henda sætunum út á tilboðsverði enda fyrirvarinn lítill sem enginn, ákveður fyrirtækið að heimta fullan prís fyrir túrinn. Eða hver heldur að 116 þúsund krónur á kjaft sé gjafverð fyrir tíu daga túr til Kanarí. Það er bara beisik verð.
Heimsferðir eru sem sagt, að því gefnu að sætin hafi selst, að græða TVÖFALT.
Óhemju smekklegt en kemur ekki á óvart frá forstjóra fyrirtækisins. Þú veist, þessum sem setti heilt flugfélag á hausinn, færði allar eignir sínar yfir á kellinguna svona til öryggis og hefur varla greitt skatta síðan hann flutti til Sviss hér fyrir margt löngu.
Endilega eiga viðskipti við slíkan aðila…







