Hálf milljón króna eru drjúgur peningur fyrir flest okkar sem ekki eru nátengd Engeyjarættinni eða dýraníðaranum Kristjáni Loftssyni. Það er upphæðin sem ferðaskrifstofa Pálma Haraldssonar, Úrval Útsýn, vill fyrir að sýna okkur dásemdir Noregs og Svíþjóðar í átta daga túr í lok sumars.
Sannarlega dýrt að heimsækja frændur og frænkur á Norðurlöndunum. Við getum eytt hálfum mánuði á Kanarí við strendur Afríku fyrir vel undir hundrað þúsund krónum ef við gerum engar súperkröfur um aðbúnað á hóteli. En að fljóta með í stuttri skipulagðri ferð til nágrannalanda skjagar í hálfa milljón króna.
Hvað er að þeirri mynd kann einhver að spyrja?
Það er upphæðin sem ferðaskrifstofa svindlarans Pálma Haraldssonar, vill frá áhugasömum um ágætan túr um Noreg, Svíþjóð og Danmörku í lok sumars eins og lesa má um hér. Alls ekki vitlaus túr þó heldur fari mikill tími í ferðalög en allavega heldur þvert á móti hreint ágæt ferð hjá fólki sem sannarlega kann að meta Íslendinga.
En 462.900 krónur per mann fyrir átta daga skottúr er ekkert annað en græðgi á græðgi ofan. Það þýðir að hver dagur í túrnum kostar hartnær 60 þúsund krónur fyrir manninn!!! Í ofanálag fer heill sólarhringur, 24 stundir, í rútu-, og lestarferðir, í túrnum. Sem fræðilega þýðir að þú ætlar að skoða flotta staði í þremur löndum á rétt rúmlega fimm dögum sléttum ef frá er talið flugið og ferðir hingað og þangað.
Það, gott fólk, kallast okur á öllum tungumálum heims…







