Hinn almenni Jón meðalplebbi og hin almenna Gunna meðalplebba þurfa að vinna svona sirka í tvær klukkustundir fyrir 3.400 krónum lóðbeint í vasann eftir að skattar og gjöld hafa farið í vasa keisarans. En lífeyrissjóðsflugfélagið Icelandair heimtar nákvæmlega þá upphæð ef þú gerir minnstu mögulegu mistök við bókun á flugi.

Pressa á Boga Nils, forstjóra Icelandair, að græða á öllum og öllu. En fyrr má nú aldeilis fyrrvera…
Merkilegt með nafnabreytingar. Ef einstaklingur, eldri en 18 ára, óskar eftir nafnabreytingu hjá hinni opinberu Hagstofu Íslands, þá kostar það EKKI KRÓNU!
En hjá flugfélagi sem er á lífi þökk sé lífeyrissjóðum landsmanna, Icelandair, þarf ekkert minna en 3.400 krónu gjald, ef þér verður eitthvað á við bókun á flugmiða á vef flugfélagsins. Ef þú gleymir einu T-i í dóttir eða einu ESSI í sonur, þarftu að greiða sem nemur tveimur klukkustundum í þreyttu djobbinu hjá ÍSAM.
Það borgar sig sem sagt að breyta nafni þínu hjá Hagstofunni til að komast hjá græðgisplebbum Icelandair. Það er að segja græðgisplebbum sem eiga nú þegar tonn af seðlum og vita ekkert hvað á við seðlana að gera.
Sem er þjóðráð ef þér verður á þau mistök að skrifa nafn eða nöfn rangt við bókun hjá Icelandair. Þú einfaldlega hendir þér niður á Hagstofu og breytir nafni þínu í það ranga nafn sem þú gafst upp við bókun. Neglir svo nýtt vegabréf á því nafni og Icelandair getur ekkert sagt nema hallelújah og gakk um borð…

En að gamni slepptu, hversu eðlilegt er að heimta tæpan fjögur þúsund kall fyrir nafnabreytingu á bókun? Fjögur þúsund krónur borga alveg laun í vel rúma klukkustund hjá velflestum starfsmönnum flugfélagsins. Tekur það virkilega rúma klukkustund fyrir starfsmann Icelandair að breyta nafni á farseðli vikum eða mánuðum fram í tímann?
Varla það. Og ef svo er þá er Icelandair ekki að ráða fólk sem kann til verka eða kýs bara að blóðmjólka viðskiptavini sína eins og kostur er.







