V ið skulum bara viðurkenna það. Stór ástæða þess að okkur flest langar að ferðast út fyrir steina þessa lands er til að komast í fjölbreyttara úrval verslana erlendis sem jafnframt bjóða vörur á töluvert lægra verði en hér er raunin.

Birmingham er ekki ýkja falleg né mjög spennandi en verslanir skipta þúsundum. Mynd Visit Birmingham
Samtök verslunarinnar mega mótmæla til endaloka heimsins en staðreyndin er samt sem áður sú að þær eru vandfundnar verslanir erlendis þar sem ekki má gera mikið betri kaup en hér heima. Gildir þar einu hvort litið er vestur um haf eða austur og miðað við verðlag almennt en ekki á útsölutímum þegar vörur fást töluvert ódýrari en ella.
Ferðalangar vilja auðvitað sem mestar og bestar upplýsingar um verðlag í þeim borgum sem til stendur að heimsækja. Verðlag getur jú skipt sköpum fyrir marga og ekki síst þá sem ætla í verslunarferð.
Í Birmingham á Englandi er hægt að gera ágæt kaup. Sé mið tekið af gengi íslensku krónunnar gagnvart pundinu í janúar 2019 er verðlag heilt yfir hér 30 prósent lægra en í verslunum í Reykjavík. Hér er um meðaltal að ræða og því ekki hægt að ganga að því vísu að allt sé hér á lægra verði.
Sem dæmi má nefna að hér fást nýjustu Levi´s gallabuxurnar kringum átta til tíu þúsund krónur. Vinsæl týpa af Nike hlaupaskóm rúmar tíu þúsund krónur og flott jakkaföt frá lúxusmerkjum þetta 45 til 80 þúsund krónur.
Sælkerar eru líka í ágætum málum í Birmingham. Máltíð á góðum veitingastað hér kostar 28 prósent minna en sams konar máltíð í Reykjavík. Máltíð á ódýrum veitingastað kostar þó svipað eða frá 1.300 til 2.000 krónur. Stór bjór á veitingastað eða bar kostar almennt 500 krónur.
Stök ferð með almenningsfarartæki hér kostar 400 krónur. Startgjald leigubifreiða 650 krónur. Þetta er á pari við það sem gerist í Reykjavík. Verð á eldsneyti er dýrara hér eða 2150 krónur per líter af 95 oktana bensíni.
Eins og lesa má um í vegvísi okkar til Birmingham er borgin ekkert framúrskarandi skemmtileg í samanburði við aðrar borgir landsins. Fátækt hér dálítið áberandi og miðað við stærð býður borgin ekki upp á svo mikið menningarlega. Á móti kemur að hingað er örstutt að fljúga sem gerir borgina fína fyrir styttri ferð.Meira um það hér.
* tölur frá Numbeo/Expatistan







