Ris íbúðaleigunnar Airbnb hefur verið mikið á skömmum tíma og vart til sál í vestrænum heimi sem ekki þekkir þetta vinsæla fyrirbæri. Öllu færri gera sér grein fyrir að í stöku borgum heims er meðalverð á gistingu hærra hjá Airbnb en á góðu hóteli.

Í stöku borgum heims er orðið dýrara að gista gegnum Airbnb en á betri hótelum.
Það kemur spænskt fyrir sjónir því upphaf Airbnb má rekja til þess að nokkrum félögum fannst of dýrt að gista á hótelum í helstu borgum heims. Íbúðaleigan átti að vera svar við þeirri þróun og var það sannarlega allra fyrstu árin. En ekki mikið lengur.
Nú greiðir fólk hærra verð, og jafnvel mikið hærra, fyrir næturgistingu almennt hjá Airbnb en á góðum hótelum. Það á til dæmis við í Barcelóna á Spáni, San Francisco í Bandaríkjunum og Feneyjum á Ítalíu.
Annars staðar er þó Airbnb vænlegri kostur enn sem komið er og í borgum á borð við Vín, Sidney, Boston, Berlín og London er meðalverð per nótt enn allt að helmingi lægra en fyrir nótt á bærilegu hóteli samkvæmt úttektum þar að lútandi.
Oftar er munurinn þó ekki meiri en fjögur til sex þúsund krónur í vestrænum borgum eða kannski of lítill til að elta ólar við sérhúsnæði í stað þess að leggjast inn á hótel á örfáum mínútum.
Hóteleigendur hafa verið seinir almennt að átta sig á stórauknum vinsælum Airbnb og álíka leigumiðla en nú virðast menn þó aðeins farnir að opna augum. Fregnir berast frá París þess efnis að hótelrekendur á betri hótelum séu nú farnir að hafa verulegar áhyggjur af sífækkandi gistinóttum og verð per nótt hjá þeim mörgum lækkað jafnt og þétt síðustu mánuðina. Líkast til muna sama þróun eiga sér stað í öðrum borgum heims þegar fram líða stundir.







