Tíðindi

Þrjár milljónir fyrir þriggja tíma töf

  10/11/2010maí 31st, 2014No Comments

Ársgamlar reglur bandaríska samgönguráðuneytisins kveða á um að séu tafir á brottför innlendra farþegavéla lengri en þrjár klukkustundir eftir að farþegar hafa gengið um borð eigi hver og einn farþegi vélarinnar rétt á allt að þriggja milljóna króna skaðabótagreiðslu.

Hefur þetta fyrirkomulag snarbreytt starfsháttum bandarískra flugfélaga og greinir Los Angeles Times frá því að hefur snarfækkað slíkum atvikum frá því í maí þegar reglurnar tóku formlegt gildi. Aðeins tólf sinnum hefur sú staða komið upp að farþegar hanga lengur en þrjár stundir á jörðu niðri eftir að kallað er út í vél samanborið við 535 sinnum á sama tíma fyrir ári.