Tíðindi

Frítt áfengi skammgóður vermir á lúxusfleyi

  11/11/2010ágúst 29th, 2021No Comments

Ókeypis áfengi er alla jafna vel þegið af velflestum en það átti ekki við um farþega lúxusfleysins Carnival Cruise en eldur braust út í vélarrúmi skipsins fyrir þremur dögum og eyðilagði rafmagnskerfi skipsins.

Var skipið loks dregið til hafnar í dag en farþegarnir, sem borguðu ágætar summur fyrir lúxussiglinguna, hafa þurft að gæla sér á heitri jógúrt og dósamat síðan þá.

Segir New York Times frá því að farþegarnir séu frekari illir enda fátt í boði í skemmtiferðaskipi sé rafmagn ekki til staðar. Gerði það illt verra að bjóða frítt áfengi þann tíma sem farþegarnir voru strandaglópar um borð.

Farþegarnir þurfa þó ekki að örvænta. Ferðin verður öll endurgreidd auk allra útgjalda og allir fá aðra fría siglingu í kaupbæti.