Fyrr í vikunni gáfum við Wow Air klapp á koll fyrir að brydda upp á því á nýjum og endurbættum vef fyrirtækisins að lista á áberandi stað sitt lægsta verð á flugi til áfangastaða sinna. En auðvitað þarf fyrirtækið að kasta ryki í augu viðskiptavina þar líka.

Ódýrustu flugfargjöld þann 10. október 2013

Ódýrustu flugfargjöld þann 10. október 2013

Fyrsta vandamálið sem Fararheill benti á, að þar væri aðeins um nokkra áfangastaði að ræða og aðeins til næstu tveggja vikna, hefur verið fært til betri vegar. Nú má finna lægsta verð til allra áfangastaða Wow Air og það langt fram í desember. Betra vissulega en gagnast engum sem vill komast ódýrast til Amsterdam í júlí 2014 svo dæmi sé tekið.

En takið eftir uppgefnu verði til hvers staðar fyrir sig á myndinni hér að ofan. Varsjá í desember fyrir 46.900 aðra leið er barasta rándýrt og ekki flokkast 31 þúsund krónur aðra leið til Vilníus fyrir jólin sem sérstakt verð heldur. Öllu betra verð til Salzburg fyrir áramótin og Berlínar í lok mánaðarins.

Nema hvað öll verð eru ekki rétt. Uppgefin verð eru án skatta og gjalda í tilfelli Varsjár þangað sem raunverð er 49.900 krónur en ekki 46.900. AÐRA LEIÐ! Fyrir utan farangur náttúrulega.

Hmmm. Ekki alveg sama verðið er það.

Hvað ef við segðum ykkur að það er nákvæmlega jafn langt flug til Salzburg og Varsjár? 2800 kílómetrar til beggja staða frá Keflavík í beinni loftlínu. Og flugvallargjöld í Austurríki eru ábyggilega hærri en í Póllandi. Hvað skýrir þá mikinn verðmismun?

Ætli það skipti ekki sköpum að hér á landi er fjöldi Pólverja sem vilja heim fyrir jólin en lítið af Austurríkismönnum. Sömuleiðis eru margir Litháar sem eyða vilja jólum með fjölskyldunni. Endilega að hækka verðið og græða á því. Minnir dálítið á verðlag Icelandair hér áður þegar samkeppni við þá var engin hér fyrir tíu, fimmtán árum síðan.

Í öllu falli skiljum við enn ekki hvers vegna öll þjónusta þarf að vera með hangandi hendi. Kíkjum til samanburðar á þennan lista hér:

Flugfélagið Norwegian listar lægsta verð til allra sinna áfangastaða ár fram í tímann. Það er góð þjónusta.

Flugfélagið Norwegian listar lægsta verð til allra sinna áfangastaða ár fram í tímann. Það er góð þjónusta.

Lögum samkvæmt segir:

Á sölustað, þ.m.t. við fjarsölu, er skylt að gefa upp verð fyrir þjónustu með endanlegu söluverði í íslenskum krónum. Endanlegt söluverð er verð með virðisaukaskatti og öðrum opinberum gjöldum. Ef annar kostnaður bætist við söluverðið þarf að taka það sérstaklega fram.

Á lista Norwegian, af mörgum talið fremsta og besta lággjaldaflugfélag Evrópu, eru ÖLL uppgefin verð heildarverð með sköttum og gjöldum en engu aukalegu eins og farangri. Enginn verður sár, reiður eða brjálaður að finna að verð á ferð er mun hærra þegar upp er staðið en auglýst er. Sumir hjá Wow Air ættu kannski að skella sér á námskeið í Noregi.