Nú er lag að leggja haus í bleyti og skipuleggja spennandi draumaferð næstu mánuðina því flugfélagið easyJet býður allt að 25 prósenta aukaafslátt ofan á almennt lág fargjöld sín næstu þrjá dagana.

Meðan Icelandair og Wow Air hækka fargjöld sín koma aðrir sem betur bjóða í staðinn

Meðan Icelandair og Wow Air hækka fargjöld sín koma aðrir sem betur bjóða í staðinn

easyJet hefur heldur betur breitt út vængi sína síðustu misserin og ekki síst hér á landi. Ekki er langt síðan flugfélagið hóf hingað flug og nýlega fjölgaði fyrirtækið flugleiðum sínum hingað um tvær og eru alls fimm nú. Þar kveikti easyJet fyrr á peru en forsvarsmenn Norwegian sem margir höfðu spáð að hefðu hug að fjölga hingað ferðum líka og ekki er útséð að svo verði.

Afsláttur easyjet gildir um allar ferðir félagsins frá nóvemberbyrjun og fram til loka mars á næsta ári og gildir um allar flugleiðir þess. Það þýðir að allra ódýrasta fargjaldið sem í boði er til London þennan tíma kostar 8.600 krónur á mann aðra leið. Ferð til Edinborgar fæst alveg niður í 7.200 krónur og til Bristol er fært fyrir 5.500 krónur lægst. Í öllum tilfellum er allt innifalið en enginn farangur.

Vefur easyJet hér.