Þrátt fyrir mikinn fréttaflutning um stórauknar vinsældir Íslands sem áfangastaðar kemst landið okkar eða staðir ekki á nýbirtan lista vefmiðilsins Tripadvisor yfir þá áfangastaði þar sem fjöldi ferðamanna eykst hvað mest.
Byggir sá listi á gögnum Tripadvisor og verður að teljast marktækur enda nokkrar milljónir ferðalanga sem þann vef nota árlega. Ekki kemur þó fram í tilkynningu hvernig nákvæmlega auknar vinsældir neðangreindra staða eru mældir. Væntanlega er það þó einhvers konar blanda af seldum ferðum á þeim vef og leitarorðum.
Eru það fyrrum austantjaldsþjóðir sem njóta mestra vinsælda en tvær rússneskar borgir og ein í Úkraínu eru til dæmis á toppnum yfir þær nýju borgir sem á þennan lista komast. Vinsælustu evrópsku borgirnar eru:
- Kíev, Úkraínu
- Moskva, Rússlandi
- Tórínó, Ítalíu
- St.Pétursborg, Rússlandi
- Napolí, Ítalíu
- Glasgow, Skotlandi
- Manchester, Englandi
- Belfast, N.Írlandi
- Valencía, Spáni
- Liverpool, Englandi
Sé staðan tekin á heimsvísu lítur listinn svona út og verður að teljast ansi merkilegur og segir sitt um vaxandi velmegun í Suður Ameríku:
- Mar de Plata, Argentínu
- Sao Paulo, Brasilíu
- Kíev, Úkraínu
- Montevideo, Úrugvaí
- Perth, Ástralíu
- Mexíkóborg, Mexíkó
- Hobart, Ástralíu
- Guadalajara, Mexíkó
- Tórínó, Ítalíu






