Tíðindi

Umhverfis hnöttinn í bómullarhnoðra

  13/11/2012No Comments

Eitt einasta skipafélag í veröldinni býður reglulega upp á hnattferðir um borð í lúxusfleyi en slík ferð er líklegast toppur alls vilji fólk skoða veröldina en að sama skapi ekki hafi of mikið fyrir. Enda sáraeinfalt að taka inn það sem fyrir augu ber en njóta lífs og slaka á sama tíma.

Skemmtisiglingar njóta sívaxandi vinsælda og toppurinn á þeim hlýtur að vera fjögurra mánaða hnattsigling

Reyndar er sennilega ekki hlaupið að því fyrir meðalmann að komast í svoleiðis siglingu. Fyrir utan kostnaðinn í sæmilegri káetu með litlu svölum sem er tæplega sjö milljón krónur á haus þarf viðkomandi að hafa nægan tíma aflögu því slík ferð tekur um fjóra mánuði í heildina.

Skipafélagið sem slíkt býður er Silversea en ein slík hnattferð er árlega hjá fyrirtækinu. Virðist reyndar töluverð verðbólga ríkja innan þess fyrirtækis því sjö milljón króna gjaldið fyrir hnattferðina 2013 hækkar í 7,4 milljónir króna fyrir sömu ferð 2014.

Og ferðin er alls ekkert slor. Farið er frá Los Angeles í Bandaríkjunum þvert yfir Kyrrahafið, þvælst um eyjar og lönd á Indlandshafi áður en leiðin liggur gegnum Súez skurðinn upp í Miðjarðarhafið. Endastöð er Barcelóna á Spáni fjórum mánuðum síðar.

Gestir þurfa ekkert að óttast að komast ekkert frá borði því á leiðinni er stoppað á yfir 50 áfangastöðum og það mörgum ansi spennandi. Monte Carlo, Istanbúl, Sharm el Sheikh, Muscat, Colombo, Singapore, Bangkok, Ho Chi Minh, Shanghai, Manila, Sidney, Auckland og víða á Hawaii eyjum svo einhverjir séu nefndir.

En svo má líka dúlla sér í spilavítum, gufu, nuddi, heitum pottum, spila tennis, horfa á kvikmyndir, drekka vín, súpa seyði, eyða peningum í spilavíti eða fjölmargt annað það sem í boði er í flestum nútíma skemmtiferðaskipum.