Harðsvíraður glæpamaður, góðkunningi lögreglunnar, fjöldamorðingi. Svona fólk sem lætur sér ekki segjast og heldur áfram að brjóta lög við hvert tækifæri. Skemmtiferðaskipafélagið Carnival Cruises, hið stærsta í veröldinni, fellur í sama hóp.

Súperdúper að njóta lífs með skemmtiferðaskipum Carnival Cruises en fyrirtækið er á nippinu að vera hrein glæpasamtök. Mynd Carnival Cruises
Flest okkar sek um ólöglegt smotterí svona í og með. Setjum ekki á okkur bílbelti, gleymum að láta skattmann vita að við séum að leigja út sextán íbúðir á Airbnb eða látum fyrirtækið borga fyrir öll matarinnkaup fjölskyldunnar. Svo ekkert sé minnst á alvarlega glæpi Panama-Bjarna og Panama-Sigmundar.
Sumarið 2019 varð skipafélagið Carnival Cruises, sem heldur úti fjöldanum öllum af skemmtiferðaskipum um allar trissur, uppvíst að því að skip félagsins henda fleiri tonnum af plastefnum lóðbeint í hafið til að losna við að greiða kostnað við förgun þegar í land var komið. Fyrirtækið játaði brot sín og greiddi rúmlega 2,5 milljarða króna sekt vegna þess.
Gott og blessað. Fyrirtækið kannski að sjá að sér?
Varla það. Þetta sama fyrirtæki varð uppvíst að hvorki fleiri né færri en 800 alvarlegum brotum árin 2017/2018 og greiddi þá meðal annars metsekt fyrir að hafa hent fleiri tonnum af notaðri olíu beint í hafið án þess að blikka auga eins og lesa má um hér.
Brotin 800 þau árin EINGÖNGU í bandarískri landhelgi og þetta er skipafélag sem siglir um öll heimsins höf og þar á meðal reglulega hingað til lands. Fastlega má gera ráð fyrir að skip Carnival hafi hent rusli og viðbjóð í íslenskan sjó reglulega enda eftirlit Landhelgisgæslu í mýflugumynd og þá aðeins þegar skip stofnunarinnar eru ekki á Miðjarðarhafinu að dúllast.
Svo ef þú elskar skemmtisiglingar en vilt líka að farið sé vel með móður náttúru og barnabörnin okkar brenni ekki til ösku úr hita og fái lungnakrabbamein um tvítugt vegna mengunar er þjóðráð að vísa öllum viðskiptum annað en til Carnival.







