Í heimi skemmtiferðaskipa er ekkert stærra fyrirtæki en hið bandaríska Carnival Cruises. Mörg skipa þeirra sigla hingað til lands. En fyrirtækið hefur ekki snefil af virðingu fyrir plánetunni okkar.

Fyrirtækið á skilorði vegna mengunar en láta sem ekkert sé. Mynd treVio
Í ljós kemur að skipstjórar skemmtiferðaskipa Carnival hafa 800 sinnum verið teknir við að dæla afgangsolíu og öðru rusli og sorpi þráðbeint í sjóinn á ferðum sínum í bandarískri landhelgi. Það er að segja 800 sinnum á SÍÐUSTU TÓLF MÁNUÐUM og það aðeins í landhelgi Bandaríkjanna. Mengun beint í hafið minnst tvisvar sinnum á hverjum einasta degi!!!
Þetta kemur fram í ágætri úttekt Miami Herald. Það merkilegasta við úttektina? Sú staðreynd að Carnival Cruises hafa verið á skilorði hjá yfirvöldum vestanhafs vegna nákvæmlega sama framferðis síðustu árin. Framferðis sem kostaði skipafélagið hæstu sekt vegna mengunar sem skipafélag hefur fengið fyrir fáeinum árum.
Sannarlega flott stöff að fylla heimsins höf af olíu og öðrum viðbjóð til að sleppa við að greiða kostnað við slíkt við bryggju. Hér er þó væntanlega aðeins um toppinn á ísjakanum um að ræða því okkur vitandi er það aðeins í Bandaríkjunum sem fylgst er grannt með losun mengunarefna hjá skipafélaginu. Hundruð skipa þeirra sigla þó hingað og þangað um heiminn og mörg þeirra sigla hingað að sumarlagi ár hvert.
Í því ljósi meira en líklegt að olía og viðbjóður frá Carnival falli svo lítið beri á lóðbeint út í hafið við Ísland. Enginn að tékka á þeim slóðum mikið
Um að gera að beina viðskiptum allt annað en til Carnival. Nema auðvitað þú teljir olíu í sjó hið ákjósanlegasta mál…







