Icelandair fær loksins verðlaun fyrir góða þjónustu. Verst að þau verðlaun koma frá stofnun sem enginn kann deili á og ekki nokkur einasti fjölmiðill fjallar um málið. Nema við auðvitað 🙂

Bros sem ná ekki til augna eru feik. Í því ljósi eru þessir tveir starfsmenn Icelandair að feika gleðina. Mynd APEX

Rákum augun í þetta sem hér sést til hliðar á tístvefnum Twitter þennan daginn. Þar segir að Icelandair hafi fengið gullverðlaun fyrir að vera „best major regional carrier” í Evrópu samkvæmt úttekt stofnunar sem kallar sig APEX.

Aldrei leiðinlegt að fá medalíu. Það geta allir krakkar á öllum krakkamótum staðfest. Enda fá þar allir medalíu um hálsinn burtséð frá því hvort allir leikir unnust eða töpuðust.

Þetta vakti athygli okkar sökum þess að Icelandair er ekki hátt skrifað fyrir þjónustu hjá neinum þeim miðlum sem við þekkjum til. Í því tilliti er Icelandair svona West Ham; lið sem stundum slefar í sjöunda sætið í enska boltanum en endar líka reglulega í því sautjánda.

Og létt gúggl leiðir líka í ljós að enginn veit hvað þetta APEX er. Í öllu falli er enginn einasti þekkti fjölmiðill heims að fjalla um málið. Reyndar barasta enginn fjölmiðill punktur!

Samt hefði nú verið óhætt fyrir forráðamenn Icelandair, svona fyrst þeir sendu lið til að taka mót verðlaununum, að heima alvöru bros við myndatöku…