Þú þarft ekki að vera sósjal- eða kommúnisti til að hafa áhuga á öðru á eynni Kúbu en strandlífinu í Varadero eða borgarlífinu í Havana. Það nánast það eina sem hefðbundar stærri ferðaskrifstofur landsins bjóða upp á og er miður því þrátt fyrir smæð er Kúba eiginlega allt annað og betra en bæði Varadero og Havana.

Hvíta húsið í Washington? Neibbs, bara útibú frá hagstofu Kúbu í Santa Clara.
Þeir þekkja þetta sem farið hafa í niðursoðnar pakkaferðir til Kúbu með stóru ferðaskrifstofunum. Þrír, fjórir dagar flatmagandi á stórgóðum ströndum Varadero plús tveir, þrír dagar í höfuðborginni Havana. Í bland eru svo fokdýrir túrar á góðan salsa-stað, barinn þar sem Hemingway drakk sig fullan eða dagsferð til Viñales.
Ofangreint svona svipað og heimsækja Ísland, skoða Gullfoss og Geysi, kaupa lundabrúðu á Skólavörðustígnum og synda í Bláa lóninu og fara svo heim og segjast hafa upplifað Ísland….

Eitt allra magnaðasta útivistasvæði á Kúbu er við Vegas Grande fossana skammt frá Trinidad.
Víst er Varadero frábær ef þú elskar Benídorm og víst er Havana góðra gjalda verð þó þar gangi nánast allt út á að græða peninga af túristum þessi dægrin. Þú ÞARFT að fara annað til að upplifa þá Kúbu sem er ástæða þess að þú fórst til Kúbu 🙂 Staði eins og Santa Clara, Trinidad, Maria La Gorda, Baracoa, Cienfuegos eða Santiago de Cuba.
Hvers vegna þessir staðir? Víst hafa erlendir ferðamenn uppgötvað þá eins og Havana og Varadero en munurinn sá að á þeim síðarnefndu gengur lífið enn sinn vanagang að mestu þó vasar eins og eins heimamanns hafi fitnað með ferðamennsku undanfarin ár. Og án þess að við viljum alhæfa um eitt né neitt þá hlýtur það að vera virkilega spennandi fyrir erlenda aðila að sjá og upplifa Kúbu eins og hún var og er í raun í stað þess að fá loftkældar rútur í skottúra á næsta skemmtistað.
Ein leið til þess, án þess að fara á taugum yfir því að skipuleggja allt sjálf, er að hafa samband við ferðaskrifstofuna Kúbuferðir. Það tiltölulega nýlegt fyrirbæri en okkur sagt að ferðaskrifstofan sé bæði hundrað prósent og bjóði hluti sem hefðbundnum ferðaskrifstofum dytti ekki til hugar. Um að gera að skoða úrvalið og láta vaða. Tíminn bíður eftir engum 😉







