Okkur segir hugur að stjórnendur hins ungverska Wizz Air hafi ekki setið með hendur í nærum síðustu mánuðina. Ekki aðeins er þetta eina flugfélagið hvers áætlun til og frá Íslandi breyttist ekki neitt milli ára heldur bætir flugfélagið í.

Vertu Wizz til Mílanó í sumar.
Jamms, við vorum búin að spá því að einhver sneddí erlendur forstjóri sæi tækifæri hérlendis í flugi með falli Wow Air og Icelandair á bjargbrún. Og miðað við að Wizz Air auglýsir nú nýja borg í beinu flugi frá Íslandi hefur sá spádómur staðist. Borgin atarna ekkert í lakari kantinum heldur: Mílanó á Ítalíu.
Lægsta verð fram og aftur sem við fundum við leit á vef Wizz skemmir ekkert stemmarann heldur og enginn þarf að eiga fúlgur í skattaskjólum eins og Júlíus Vífill til að ráða við túrinn. Eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti hér til hliðar er komist út og heim aftur á háannatíma í júlí fyrir svo mikið sem 9.200 krónur miðað við gengi dagsins.
Ef marka má bókunarvef Wizz Air er hér aðeins um sumarflug að ræða að svo stöddu en allt er betra en ekkert enda landinn æði góðu vanur eftir húrrandi ferðamannasveiflu hér síðustu sjö árin eða svo.
Eini mínusinn kannski sá að Mílanó var og er miðdepill kórónafaraldursins á Ítalíu og þó sá fjandi hafi látið undan síga er sýkingarhætta klárlega enn fyrir hendi og verður efalaust út sumarið hið minnsta. Erlendir gestir engu að síður velkomnir.
* Leitað klukkan 18 þann 12. júní 2020. Flugsæti með handfarangur meðtalinn.
Ekki gleyma svo áttföldum hótelbókunarheimsmeistara ef þig vantar gistingu á kostakjörum 🙂







