Húha! Einhver gæti haldið að hræbillegt þjónustuver Icelandair á Indlandi yrði nú aldeilis nýtt til að plástra sár og vesen svona meðan allt er í volli vegna kóróna. En ef marka má samfélagsmiðla er það ekki alveg raunin…

Miðað við algjöran þjónustuskort hjá Icelandair er kannski búið að segja upp þeim 100 Indverjum sem sinntu viðskiptavinum Icelandair. Mynd Icelandair
Hjá fyrirtæki sem hefur gert allt vitlaust frá Hruninu 2008 er kannski það allra heimskulegasta að segja upp þeim 100 indversku starfsmönnum sem þó þóttust aðstoða ósátta viðskiptavini Icelandair. Því sé mið tekið af því að ekki nokkur kjaftur fær svo mikið sem múkk frá Icelandair þessa síðustu og verstu má slá föstu að þeir Indverjar mæla nú göturnar.
Forstjórinn þó ennþá að henda Hagkaupssteikum á Landmann grillið sitt öll kvöld og láta þreytu líðu úr kroppi í milljón króna pottinum sínum. Það mýkir andlitsvöðvana nægilega til að sá getur glott daginn út og inn og ekki síst sökum þess að Panama-Bjarni, fjármálaráðherra, ætlar að bjarga flugfélaginu hvað sem tautar og raular. Aldrei leiðinlegt að fá svoleis ókeypis tryggingu hjá stjórnvöldum.
Á meðan þetta svona síðasta sólarhring:
















