Líklega er fátt ömurlegra undir sólinni en þegar fyrirtæki montar sig af einhverju sem það kom hvergi nálægt og meira að segja eyddi tugmilljónum króna að berjast gegn á sínum tíma.

Vodafone reynir að veiða viðskipti með viðbjóðslegum hætti. Sleppa viðskiptum við það batterí.
Það er Vodafone sem er sekt um slík skítavinnubrögð en í nýrri sjónvarpsauglýsingu fjarskiptafyrirtækisins er glápendum bent á að nú sé hægt að nota símann erlendis í Evrópu ÁN ALLRA AUKAGJALDA!!!
Það hljómar nú alls ekki illa og eru kannski fréttir fyrir marga þarna úti sem ekki liggja yfir fréttamiðlum lon og don. Reyndin er þó sú að það kostar nú það sama að nota símann í Evrópu og hér heima, án aukagjalda, hjá ÖLLUM fjarskiptafyrirtækjum Evrópu. Vegna þess að Evrópusambandið lagði bann við hinum fokdýru reikigjöldum sem við þurftum öll að greiða ef okkur datt í hug að heyra í einhverjum heimavið á ferðalagi í Evrópu. Það bann tók gildi í júní á þessu ári.
Hvers vegna taka Vodafone sérstaklega fyrir vegna þessa? Jú, það var nefninlega Vodafone sem barðist hart GEGN ÞVÍ að Evrópusambandið legði blátt bann við öllum þessum aukagjöldum sem okkur var gert að greiða fyrir notkun á farsíma erlendis. Vodafone vildi halda feitum reikigjöldum og blóðmjólka sína kúnna og lagði í málaferli við Evrópusambandið vegna þessa fyrir fimm árum síðan. Um það má til dæmis lesa hér fyrir áhugasama.
Að hoppa svo fram núna með glaðlega auglýsingu og auglýsa það sérstaklega sem fyrirtækið barðist hatrammlega gegn er eins lélegt og lélegt getur orðið. Mál að skipta um þjónustuaðila ef þú ert í áskrift hjá Vodafone.







