Makalaust nokk. Sé leitað að „Wow Air“ á vef stærsta vefmiðli landsins, Vísir.is. koma í ljós tvær blaðsíður af „fréttum“ þar sem flugfélagið er dásamað út í eitt.

Er Skúli Mogensen að kaupa flottar kynningar hjá Vísi eða er Vísir.is að kyssa rass Mogensen í von um tekjur? Sumum er spurn.
Það auðvitað kemur viti bornu fólki ekki á óvart. 365 Miðlar, sem halda úti Vísi í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannssonar og hans familíu, taka auðvitað mót seðlum fyrir að mæla með hinum og þessum aðilum sem pranga þurfa vörum inn á almenning án þess að tiltaka eitt einasta orð þess efnis að um auglýsingu sé að ræða. Nema einhver haldi að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi allt í einu í kjölfar hrunsins farið að ganga hinn þrönga stíg réttlætis í garð almennings…
Það verður í öllu falli að teljast með ólíkindum að ALLAR fréttir tengdar Wow Air á leitarsíðu Vísis eru nánast þráðbeint upp úr fréttatilkynningum flugfélagsins og allar jákvæðar út í eitt. Þetta má glögglega sjá hér að neðan:

Allar efstu fréttir Vísis fjalla um hversu gríðarlegur vöxtur hefur verið hjá Wow Air eða hversu marga nýja áfangastaði Wow Air hefur bætt við að undanförnu. Og nota bene, það má fletta nokkrum síðum áður en nokkur verður var við að þjónusta hjá Wow Air er í mörgum tilfellum verri en engin.
Með öðrum orðum þá finnst ekki stafur um hversu ILLA flugfélag Skúla Mogensen stendur sig hvað varðar þjónustu. Þjónustu sem er í mörgum tilfellum ALLS ENGIN!
Nei, nei. Best að fjalla bullandi jákvætt um stór fyrirtæki í landinu svo við fáum nú feitari auglýsingapakka. Fokk þessum landslýð sem býst við hlutlausum fréttum frá miðlum landsins. Það skítapakk má eiga sig…
Svona eiga fjölmiðlar að vera (ekki).







