Það þótti dálítið móðins lengi vel að Icelandair Group ætlaði að bjóða spenntum fjárfestum bréf í fyrirtækinu á EINA KRÓNU í hlutafjárútboði þann 16. september.

Ef apparat er þjóðhagslega mikilvægt á að ríkisvæða það prontó. Mynd Icelandair

Síðan eru liðnar þrjár vikur og bréf í fyrirtækinu hafa bara lækkað, lækkað og lækkað. Í dag geta Jón og Gunna keypt hlut í Icelandair fyrir skitna 96 aura.

Verst að aurar eru ekki lengur í umferð í íslenska myntkerfinu…

Allir þeir sem þátt tóku í „velheppnuðu” hlutafjárútboði Icelandair fyrir tæpum mánuði síðan eru ekki beint að sjá hunangið drjúpa af hverju bréfi.

Eiginlega alls ekki því fjárfestar á íslenskum hlutabréfamarkaði hafa barasta enga trú á batteríinu. Svipað spennandi að fjárfesta í Icelandair og bakaríi Jóa Fel. Ó sorrí, Jói Fel kominn á hausinn.

Gengi bréfa Icelandair frá frægu hlutafjárútboði

Það var nú eiginlega ekki það sem lagt var upp með. Bréf á eina krónu áttu að vera dýrindis frábær kaup í príma flugfélagi sem verður stórveldi um leið og Kófinu slotar.

Nema hvað þær áætlanir gera ráð fyrir að framtíðin verði nákvæmlega eins og forsjáir spekingar Icelandair sjá hana fyrir sér.

En ef þeir eru svona forsjálir og sniðugir, hvers vegna sáu þeir ekki Kófið fyrir til að byrja með?

Alas, við vitnum bara í góðan kollega okkar hér: