Stjórnvöld í Bretlandi stíga ekkert frekar í vitið en vangefinn forseti Bandaríkjanna. Allt útlit fyrir að Bretland kljúfi sig frá Evrópusambandinu án samnings og það strax um næstu áramót. En hvað þýðir það fyrir okkur Íslendinga?

Bretar ekki stórveldi lengur þó þeir haldi það. Góðu heilli breytist fátt við útgöngu Breta úr ESB um áramótin. Só far só gúdd.
Góðu heilli breytist ekkert að ráði strax. Einstaklingar sem tilheyra Evrópusambandslöndum eða EES-þjóðum (Ísland þar á meðal) munu áfram geta farið til Bretlands og/eða flogið um Bretland áfram til annarra Evrópulanda vandaræðalaust. Við gætum þurft að sýna vegabréfið okkar oftar en við höfum þurft frá aldamótum en þess utan alles gut.
Það breytist sem sagt ekkert fyrir þau okkar sem nota Bretland sem millilendingarstað áður en við höldum annað. Né heldur fyrir þau okkar sem ætla að njóta lífs í Englandi, Wales, Norður-Írlandi eða Skotlandi. Allt helst að mestu óbreytt frá því sem nú er.
Bresk stjórnvöld gætu breytt stöðu mála eftir hentugleika þegar líður á árið 2021 og heimtað auknar upplýsingar eins og netfang og hvað við höfum skrifað neikvætt um bresk stjórnvöld á twitter. En það er ólíklegt. Nema bresk stjórnvöld vilji líka drepa allt millilandaflug um landið.







