Hugsaðu þig vel og lengi um hvort vænlegra sé að kaupa nokkur kíló aukalega undir handfarangur eða hvort það borgi sig hreinlega að greiða fyrir innritaða 20 kílóatösku. Hjá Wow Air fæst ekkert endurgreitt ef þú gerir mistök.

Stundum er nú ósköp eðlilegt að brjóta reglur. Mynd Wow Air

Stundum er nú ósköp eðlilegt að brjóta reglur. Mynd Wow Air

Athyglisverð færsla á fésbókarvef flugfélagsins en þar óskar einstaklingur sem greiddi fyrir aukakílóaheimild í handfarangri flugs sem hann bókaði eftir því við Wow Air að fá að breyta og greiða fyrir heila innritaða tösku í staðinn.

Ekkert mál að breyta því en ekki fræðilegur séns að fá að nota handfarangursgreiðsluna upp í töskugreiðsluna!

Manninum sem sagt gert að punga bæði út fyrir aukinn handfarangur, tæpar fjögur þúsund krónur, og eina tösku í ofanálag, tæpar átta þúsund krónur.

Vissulega er verið að keyra á lággjaldaflugsforminu hjá Wow Air þar sem allt nema andardráttur kostar aukalega. En er það ekki líka aðall góðra fyrirtækja að sýna sanngirni og sveigjanleika? Standa ekki blýföst á misgóðum reglum eins og úrelt ríkisfyrirtæki.

Nú er ritstjórn Fararheill engir flugsérfræðingar en við sjáum alls ekki hvað í ósköpunum er svo flókið eða erfitt að leyfa viðskiptavini að nota greiðslu fyrir tösku upp í greiðslu fyrir aðra tösku. Margar vikur í brottför í þokkabót? Jú, þetta kostar tveggja mínútna vinnu starfsmanns en flugfélagið græðir líka 4000 krónum meira en ella.

Nei! Stöndum hart á okkar. Látum karl greiða fyrir allt klabbið. Kostnaðurinn kannski meiri en Wow Air gerir sér grein fyrir því varla fer þessi einstaklingur að eiga frekari viðskipti við flugfélagið og líklega eru fleiri þarna úti sem finnst fyrir neðan allar að sýna ekki lit í einu né neinu.