Það er mjög sjaldgæft að það snjói mikið á hinum brennheitu Kanaríeyjum nema þá í allra hæstu fjallstoppa. Hvað þá að það snjói tvo sólarhringa í röð.

Fjallvegir á Kanarí lokaðir vegna snjóa í rúman sólarhring

Fjallvegir á Kanarí lokaðir vegna snjóa í rúman sólarhring

Einmitt það gerðist í vikunni þegar heimamenn í efri byggðum vöknuðu upp við snævi þakta jörð á fimmtudaginn var og áfram snjóaði á föstudaginn líka.

Ekki svo að skilja að fólk á Los Cristianos eða Ensku ströndinni hafi dregið fram snjóþoturnar því ekki náðu snjókorn þangað niður en jörð var hvít töluvert neðan en gengur og gerist hér um slóðir. Margir fjallvegir voru lokaðir um tíma ekki síður en á Íslandi. Hér má sjá eitt fréttamyndband um málið.

Ekki er þó ástæða til að pakka vetrarfatnaði mikið. Veðurspá næstu daga gerir ekki ráð fyrir meiri snjókomu. Þvert á móti; sól og blíða um allt.