Skip to main content

Mikið fjallað um hörmulegar tafir á vélum Primera Air þessa helgina frá minnst þremur áfangastöðum flugfélagsins með tilheyrandi óþægindum fyrir viðskiptavini. En fólk hefði getað notið lífsins annars staðar en á hörðum stólum án allrar þjónustu á flugvellinum í Alicante alla nóttina.

Átta stunda töf á flugi er ávísun á tæplega 50 þúsund króna bætur.

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum þurftu farþegar Primera Air á leið frá Alicante til Íslands að dúsa heila nótt á flugvellinum vegna sífelldra tafa. Vélin, sem átti að leggja af stað heim upp úr miðnætti fór aldrei í loftið frá spænsku borginni fyrr en klukkan níu að staðartíma í morgun.

Farþegum var fyrst tilkynnt um seinkun við innritun í Alicante um klukkan 23 að kvöldi þar sem fram kom að brottför myndi seinka til klukkan 04 um nóttina. Skömmu síðar kom önnur tilkynning þess efnis að brottför yrði miklu síðar en það eða klukkan níu næsta morgunn.

Viðskiptavinir Primera Air vissu því á tilteknum tímapunkti upp úr miðnætti að framundan væri átta stunda seinkun á brottför. Hvers vegna hanga í leiðinlegri flugstöð þar sem ekkert er opið ALLA NÓTTINA?

Við þær aðstæður á fólk að drífa sig út úr flugstöðinni hið snarasta, taka leigara á næsta hótel og hvíla lúin bein. Ekki síst vegna þess að allnokkur ágæt og ódýr hótel eru í fimm til tíu mínútna fjarlægð frá flugvellinum.

EN FLUGFÉLAGIÐ BORGAR EKKI HÓTELGISTINGU?

Vissulega ber Primera Air engin skylda til að greiða fyrir hótel þar sem töfin var „aðeins“ átta stundir í þessu tilviki en flugfélagið mun aldrei sleppa undan bótaskyldu vegna tafanna. Bótaskyldu sem færir öllum farþegum sem eftir sækja rétt tæpar 50 þúsund krónur miðað við gengi dagsins. Og nokkrar stundir á ágætu hóteli með mjúkt rúm fyrir þreyttan líkama kostar fyrirvaralaust á þessum slóðum allt niður í fimm til sex þúsund krónur á hótelvef Fararheill.

Öllu skárra að ná dúr á ljúfu hóteli í nokkrar stundir en hanga aðframkomin á óþægilegum flugvallarstólum með hvorki vott né þurrt.

EN ÉG MÁ EKKERT YFIRGEFA FLUGVÖLLINN SÍSONA?

Segir hver? Víst máttu það. Flugvöllur er ekki fangelsi. Tveir úr ritstjórn Fararheill hafa einmitt gert þetta í þau skipti sem feit töf var fyrirséð eftir að búið var að tékka sig inn í Alicante. Þú ert enn með brottfararspjaldið og þarft aðeins að fara aftur gegnum öryggisleit sem ekki tekur yfirleitt langan tíma á þessum flugvelli.

EN HVAÐ MEÐ FARANGURINN?

Engar áhyggjur af honum. Hann bíður bara á sínum stað eftir að rellan lendi svo hægt sé að koma honum um borð. Og nóta bene, farangurinn fer ekkert án þín. Ef þú ert svo ekki um borð þegar rellan loks ætlar í loftið verður að losa farangurinn úr vélinni áður en hún fer í loftið. Það aftur kostar meiri tafir og kostnað fyrir Primera Air svo þeir verða bara glaðir ef þú mætir líka fyrir brottför.

AÐ SÆKJA BÆTURNAR

Á vef Vísis er mikið gert úr því að einhver fyrrum lögga sé að safna saman fólki í fésbókargrúppu til að sækja bætur til Primera Air. Það útskýrir líklega hvers vegna viðkomandi er fyrrverandi lögga því það þarf enga fésbókargrúppu til þess. Það þarf aðeins að senda kvörtun til Samgöngustofu með beiðni um bætur. Ekki láta nægja að senda beiðni til Primera Air. Flugfélagið hefur áður látið undir höfuð leggjast að greiða bætur og/eða aðeins greitt eftir dúk og disk mánuðum og jafnvel árum seinna. Farðu beint í Samgöngustofu strax.