Við hér værum dónar og skítaplebbar ef við kynnum ekki að þakka fyrir okkur. Það gerum við hér með því samkvæmt Google sýndu 32 þúsund notendur því áhuga að kíkja á vef okkar og eyða þar lengri tíma en 30 sekúndum þann mánuðinn. Það aldrei verið hærra 🙂

Alvöru ferðavefur án kjaftæðis virðist hitta í mark hjá sífellt fleiri landsmönnum. Takk fyrir það.
99% af heimsóknum þann mánuðinn voru frá Íslandi og kemur fáum á óvart enda skrifum við á íslensku og beinum greinum okkar að hugsandi Íslendingum. Sem er jú þjóðflokkur sem fer halloka nú þegar kjánalegheit og eintóm yfirborðskennd þvæla ræður ríkjum hjá stóru fjölmiðlunum.
Takk fyrir okkur. Við höldum ótrauð áfram 🙂 🙂 🙂







