Sextán þúsund sex hundruð og sautján krónur! Það rétt slefar fyrir sæmilegri nautalund og lítillegu meðlæti í næstu kjörbúð. Upphæðin dugar líka til að skottast til hinnar ljúfu Búdapest og heim aftur 🙂

Kastalinn fallegi á Búda-hæð í Búdapest.

Yfirleitt kostar engin ósköp að fljúga frá Íslandinu góða til höfuðborgar Ungverjalands þessa síðustu og verstu. Þangað flýgur lággjaldaflugfélagið Wizz Air statt og stöðugt og að vetrarlagi er algengt að finna flugfargjald fram og aftur kringum tuttugu þúsundkalla ef enginn er farangurinn.

Slíkt yfirleitt verra að sumarlagi þegar landinn þráir útrás og einu gildir hvert skal skottast. Þann tíma er algengara að flugfargjaldið báðar leiðir skottist í 30 þúsund krónur eða vel yfir það.

Við hnutum hins vegar um æði sexí fargjald til og frá Búdapest 4. til 11. júlí með Wizz Air. Það kostar svo mikið sem 16.617 krónur þegar þetta er skrifað. Það brilljant verð á átta klukkustunda flugi í heildina jafnvel þó ekkert sé meðferðis nema nærur og iPad. Það líka sirka HELMINGI lægra verð en á flugi fram og aftur sömu leið á dagsetningum í kring.

Hér þjóðráð að grípa gæs prontó ef spáss um Búdapest er ofarlega á óskalistanum. Ekki slæmt heldur að versla gistingu hjá fimmföldum heimsmeistara samkvæmt World Travel Awards hér að neðan 🙂