Það er ekki á hverjum degi sem að lönd eða borgir ákveða að HÆTTA að auglýsa sig sem drauma áfangastað. Það gerði Amsterdam í Hollandi þó í vikunni. Eitthvað sem borgarstjóri Reykjavíkur gæti lært af ef hann hefði vit í kolli.

Með ríkis- og borgarsköttum mun ferðafólk til Amsterdam greiða rúmar 1600 krónur hvern dag frá árinu 2019.
Jamms, borgarstjórn frægustu borgar Hollands, sömu borgar og hefur auglýst linnulaust dýrð sína og djásn um í áratugi, hefur nú formlega hætt öllum slíkum auglýsingaherferðum. Frá og með þessari viku sérðu hvergi auglýsingar neins staðar sem hvetja þig til að heimsækja eða eyða tíma í Amsterdam.
Það meðvituð ákvörðun borgarstjórnar Amsterdam en borgarbúar eru afar langþreyttir á sífjölgandi ferðamönnum sem ekki aðeins fylla miðborgina heldur og snarhækka leiguverð nú þegar annar hver maður er að leigja út kytru á Airbnb eða sambærilegum miðlum.
Samkvæmt borgarstjóra Amsterdam hefur borgin engan áhuga á að verða næstu Feneyjar en eins og lesendum er kunnugt er holskefla erlendra ferðamanna þar í borg svo mikil að 75 prósent heimamanna hafa þurft að flýja annað vegna kostnaðar. Feneyjar er sem sagt gjörsamlega innantómt hræ.
Í Amsterdam hafa menn ekki áhuga að verða Feneyjar númer tvö og hafa tekið til sinna ráða. Gott og blessað með það enda eru 22 erlendir ferðamenn í borginni á móti hverjum einum heimamanni þegar verst lætur á sumrin.
Ef bara Dagur B. og meðvitundarlaust lið hans í borgarstjórn Reykjavíkur væru með á nótum eins og menn í Hollandi. Það eru jú 18 erlendir ferðamenn í borginni versus hvern einn Íslending þegar verst lætur hér. Næstum jafn slæmt og í Amsterdam. Samt lætur Dagur sér fátt um finnast og gefur lóðir undir sífellt fleiri hótel og leyfir sífellt fleirum í miðborginni að skammtímaleigja út kytrur sínar.
Ergo; Degi drullusama um landann meðan stjóra Amsterdam er ekki alveg slétt sama…







