Það hljómar auðvitað hjákátlega en vonandi verður framtíðin sú að flugfélögum verði gert að mismuna farþegum sínum eftir líkamsþyngd.

Fersk í flug þessi en þyngdin þýðir að allir borga meira.
Ein allra mesta hræsni nútímans er sú staðreynd að 50 kílóa þung manneskja borgar sama verð og 130 kílóa persóna fyrir 20 kílóa tösku á sardínufarrými flestra flugfélaga heimsins. Það þrátt fyrir að sú mjóa vegi alls 70 kíló með töskunni en sú feita 150 kíló með tösku. Og það er jú þyngd véla sem ákvarða hversu mikið eldsneyti rellan notar í flugi og þar af leiðandi hvað fargjaldið kostar hverju sinni.
Sérstakt gjald per kíló á farþega kann að hljóma fáránlega en þó ekki þegar haft er í huga að flugsamgöngur menga heil ósköp og flugfélögin greiða ekki aur í skatt vegna þess. Þau eru alfarið laus við skatta og skyldur vegna mengunar sem dregur hundruð þúsunda á heimsvísu til dauða vel fyrir tímann.
Auðvitað er það klár og skýr mismunun að heimta fimm þúsund kall í aukagjald fyrir feita manneskju versus mjóa manneskju. En það er líka hrein og klár mismunun að heimta sama gjald af mjórri manneskju og feitri fyrir tösku í flugi.
Þetta skiptir sífellt meira máli nú þegar koltvísýringur eykst í andrúmsloftinu hraðar en menn geta sagt heibabbílúlla. Margir á norðurhveli jarðar mjög sáttir við hækkandi hitastig en það kostar líka sitt. Það kostar megnsúr höf svo fiskistofnar deyja unnvörpum. Það kostar slíkar hitabylgjur við miðbaug að ekkert fær þar vaxið sem aftur þýðir að milljónir flýja svæðið til suðurs og norðurs. Það kostar að sjávarmál fer hækkandi með bráðnun jökla og með bráðnun jökla deyja út magnaðar dýrategundir á borð við mörgæsir og ísbirni. Er þá fátt eitt nefnt.
Það er líka annað sem hér skiptir máli. Fyrsta flugfélagið sem heimtar aukaskilding fyrir feita um borð mun líklega fara lóðbeint á hausinn en í þeim löndum þar sem einokun eða fákeppni á sér stað, eins og hér á klakanum, gæti þetta líka kostað allsherjar megrun því ekki er um annað að velja. Því er líklegt að þú passir upp á kílóin á ferðalagi ef að hvert aukakíló kostar þig aukalega á flugvellinum.
Kannski er fituskattur í flugi veigamesta leiðin til að koma feitlögnum í form. Því hvaða þybbinn einstaklingur borgar 50 þúsund aðra leiðina til Kanarí meðan sláninn þarf aðeins að punga út tíu þúsund krónum…







