Við fyrstu sýn væri kannski hægt að draga þá ályktun að flugfélagið Icelandair væri nú barasta að standa sig sallavel miðað við allt og allt. Flugfélagið nælir í 86. sætið á lista Skytrax yfir bestu flugfélögin 2018. Ekki amalegt fyrir lítið flugfélag. Eða hvað?

Auglýsingarnar alltaf skemmtilegar. Flugið sjálft ekki svo. Mynd Icelandair

Það vissulega nokkur árangur að komast á þennan árlega lista Skytrax enda skipta flugfélög heimsins hundruðum og ólíkt öðrum aðilum sem setja saman slíka lista, þykir Skytrax mest og best og þá aðallega sökum þess að það eru viðskiptavinir sjálfir sem gefa þar einkunnir. Annars staðar labba misvitrir „sérfræðingar” um og ákveða svo einkunn eftir hentugleika eða sporslum.

Og er 86. sætið góður árangur eða tóm meðalmennska?

Sætistalan svarar þeirri spurningu. Þótt flugfélög heimsins telji nokkur hundruð er töluverður fjöldi þeirra að fljúga sextugum rellum milli krummaskuða í fjarlægum hlutum heimsins og vart marktæk sem alvöru flugfélög. Í því ljósi er árangur Icelandair meðalmennska í besta falli og enn meiri meðalmennska þegar tekið er tillit til að flugfélagið komst hæst í 81. sæti árið 2016. Icelandair fær því sífellt lakari einkunnir hjá viðskiptavinum sínum.

Þetta í ofanálag við stórslys á hlutabréfamörkuðum allt þetta ár er ekki vitnisburður um príma rekstur og virðingu fyrir viðskiptavinum…

Auðvitað þarf ekki að taka fram að Wow Air finnst hvergi og hefur aldrei komist á þennan lista. Sem segir sitt um ástæður þess að flugfélagið fór yfir um…

Listinn í heild sinni.