Seinkun verður á þremur áætlunarferðum Icelandair þennan daginn samkvæmt upplýsingum á vef Icelandair. Helgast það af seinkun einnar vélar en ekki er gefið upp hvað olli þeirri ákveðnu seinkun.

Ólíkt því sem áður gerðist hafa biðfarþegar nú leiðir til að láta óánægju sína í ljós. Hvenær ætlar Icelandair að kveikja á þeirri peru…
Um er að ræða tafir á brottförum FI212, FI213 og FI430 og er um tveggja stunda seinkun á þessum flugum að minnsta kosti.
Tafir út af fyrir sig geta átt sér eðlilegar skýringar og ekkert við því að gera annað en þreyja þorrann. En Icelandair virðist aftur og aftur klikka á því lágmarksatriði að LÁTA FÓLK VITA. Sök sér að lenda í seinkun en að halda farþegum í óvissu er ekki bara dapurt heldur ókurteisi. Enginn hefur gaman af því að hanga klukkustundum saman í flugstöð.







