Dálítið merkilegur hlutur átti sér stað í byrjun mánaðarins í London en þá reis tjaldið á nýrri sýningu frá eldgömlum belgjum í orðsins fyllstu. Hinir ævintýralega fyndni hópur Monty Python er fjarri öllum gleymdir og nú hefur verið bætt við fjölda sýninga við þær þrjár sem upphaflega stóð til að sýna.

Gamlir hrútar aftur á svið. Monty Python gengið er nú hægt að sjá með eigin augum í London. Mynd Jon Lewis

Gamlir hrútar aftur á svið. Monty Python gengið er nú hægt að sjá með eigin augum í London. Mynd Jon Lewis

Monty Python hafa sjaldan komið saman hin síðari ár og aldrei sett upp leikrit áður sem byggir ekki á neinu nema endurtekningum af eldra efni. Sem er í góðu lagi þegar efnið er allt sama hrein klassík.

Þess vegna skömmumst við okkar ekkert fyrir að mæla með að fólk tryggi sér miða og þegar þetta er skrifað er það hægt þrátt fyrir mikla aðsókn því bætt hefur verið við nokkrum aukasýningum síðar í mánuðinum.

Allt um málið hér.