Tíðindi

Swiss Air besta flugfélag Evrópu

  26/12/2012desember 24th, 2013No Comments

Swiss International Air Lines er formlega besta flugfélag Evrópu 2012 samkvæmt niðurstöðum breska neytendatímaritsins Which? þetta árið en þær birtast í nýjasta hefti þess. Á hæla Svisslendinganna koma Turkish Airlines og Lufthansa og eru niðurstöður Which? mikið til þær sömu og fyrir sex mánuðum síðan hjá World Airline Awards en röðin er önnur.

Tímaritið birtir slíkan lista árlega og þykir marktækur jafnvel þótt gagnrýnt sé hversu fáir taki í raun þátt í könnun tímaritsins. Sérstaklega hafa lággjaldaflugfélög gagnrýnt niðurstöðurnar en mörg þeirra, og þau bresku sérstaklega, fá þar hörmulega einkunn.

Niðurstöðurnar eru birtar sem prósentur frá 0 til 100 og meðan Swiss Air Lines fær einkunnina 82% fær Ryanair 34% og Thomas Cook 36%.

Besta flugfélagið á norðurslóðum Evrópu er Finnair sem nær sjötta sætinu á Evrópulistanum. Enn og aftur er það í stíl við niðurstöður World Airline Awards sem gerðar voru opinberar í júlí en þar þótti Finnair best flugfélaga Norðurlanda meðan Icelandair náði þar fjórða sæti af sjö flugfélögum alls.