Stutt í að árið 2013 gangi í garð og ævi okkar sem á lífi erum styttist sem því nemur. Það er því ekki eftir neinu að bíða að smella sér í ævintýraferðina sem þig hefur alltaf langað til að gera.
Fararheill hefur tekið saman fimm ferðir á næsta ári sem við teljum sérdeilis vel heppnaðar og ættu að öllu eðlilegu að vera skemmtilegar og fræðandi en mikið meira er ekki hægt að fara fram á í hópferðalögum.
Reyndar er sá galli á gjöfinni að stóru ferðaskrifstofurnar okkar eru alls ekki klárar í bátana að ráði. Enginn þeirra hefur enn kynnt ferðir sínar árið 2013 og við þreytumst ekki á að gagnrýna slíkt. Það þarf ekki stærðfræðing til að vita að margar þær ferðir sem mest heilla almenning eru sérferðir, siglingar eða annars konar pakki en busl í Benídorm. En slíkar ferðir eru yfirleitt dýrar og gefa þarf áhugasömum tækifæri til að spara fyrir slíkum ferðum án þess að setja allt á tólf mánaða vísa.
Þetta hafa sem betur fer litlu ferðaskrifstofurnar löngu fattað enda gömul saga og ný að litlu aðilarnir í öllum atvinnugreinum bjóða alltaf persónulegri og þar af leiðandi betri þjónustu en risarnir.
Tekið skal fram að Fararheill hefur engin tengsl við viðkomandi ferðaskrifstofur og hefur engan hag af annan en vekja áhuga eigin lesenda.
Ferðirnar eru í engri sérstakri röð þessar:
BÆNDAFERÐIR / Sri Lanka 26.mars – 12.apríl
Fyrir Frónbúa á norðurhjara hefur alltaf heillað að heimsækja löndin við Indlandshaf. Hvað þá lönd sem eru rétt nú fyrst að opnast og eru enn ekki yfirkeyrð af fjöldatúrisma sem fáum líkar vel. Búrma er eitt slíkt land en Sri Lanka er annað. Þar hafa dunið yfir miklar hörmungar og borgarastyrjöld ríkt þar lengur en elstu menn muna. En nú er henni lokið og þó ráðandi öfl í landinu níðist enn á fátækum þorpsbúum og hirði meðal annars öll bestu strandlönd og selji útlenskum hótelkeðjum þá hefur það haft í för með sér að þar eru nú fyrsta flokks strendur og hótel og fjölmargt forvitnilegt að sjá og skoða á eynni. Ferð Bændaferða nær einmitt um alla eyjuna sem er að mati Fararheill næsta Balí. Hræbillegt að lifa og fólkið hér undantekningarlítið brosandi mót ferðamönnum.
Verð á mann liggur ekki fyrir þegar þetta er skrifað. Nánar um ferðatilhögun hér.
NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN / Færeyjar júní til ágúst
Mikið var um það talað í kjölfar hrunsins þegar litlu Færeyjar varð allra fyrsta þjóðin til að sýna Íslendingum stuðning í efnahagshremmingum sínum. Hver blaða- og blogggreinin á fætur annarri dásamaði frændur okkar þar og hvað við ættum nú að sýna þeim meiri virðingu. En sem oftar með okkur Íslendinga er Þingvallagjá milli orða og gjörða og Íslendingar ekki séð tilefni til að fjölga ferðum sínum til frænda okkar síðan. Margir telja Færeyjar of líkt Íslandi og þar sé fátt að sjá en það er hreinasta bull og vitleysa. Ekki aðeins er fólkið þar frábært og tekur Íslendingum fagnandi hendi heldur og er landið ótrúlega fallegt eins og sjá má meðal annars hér. Þar leiðist engum og allra síst í dægilegu sumarhúsi. Norræna ferðaskrifstofan býður úrval slíkra ferða og vitaskuld siglt með Norrænu sem er ekki leiðinlegt í styttri ferðum. Drífa sig.
Verð frá 44 þúsund á mann. Nánar á heimasíðu Norrænu ferðaskrifstofunnar hér.
ÚRVAL ÚTSÝN / Kína 31.maí – 14.júní
Þó fljótt sé farið yfir sögu í þessari löngu ferð og þvælingur helst til mikill til að fólk slappi af næst hér að sjá töluvert af því merkilega sem Kína er þekkt fyrir. Stoppað í öllum helstu borgum og þar skoðað allt túristavænlegt í hverri fyrir sig. Ólympíuleikvangurinn í Beijing, Kínamúrinn, Shanghai og helstu söfn þar, Xian og hinar merkilegu terracotta leirstríðsmenn, hið ævintýralega fallega landslag við Guilin og förin endar í klassaborginni Hong Kong þar sem allt er í boði og margt af því á fantagóðu verði. Töluvert mikið innifalið og gist á eðal hótelum.
Verð er rúm milljón króna fyrir tvo saman. Nánar um ferðina hér.
ORIENTAL / Laos, Kambódía, Víetnam
Einhvern tíma velt fyrir þér hvernig væri að ferðast um í hinni raunverulegri Austurlandahraðlest? Siglt á hinni miklu Mekong? Nú geturðu bara prófað í fimmtán daga ferð þessarar ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í ferðum um Asíu. Hér er farið rólega yfir merkilegar minjar, borgir og náttúrufegurð í fjórum æðislegum og framandi löndum sem hvert um sig mun heilla Íslendinga hundrað prósent. Bangkok er brilljant heimsóknar og sé hin stórkostlega Angkor Wat falleg fótgangandi er hún varla verri á fílsbaki. Tonle Sap ár- og vatnasvæðið er sömuleiðis náttúruundur mikið Leiðsögumaðurinn þaulkunnugur sögu og staðháttum sem er alltaf plús í kladdann.
Verð liggur ekki fyrir. Leiðalýsing hér.
VITA FERÐIR / Svartahafið 23.september – 7.október
Ljúf sigling á ljúfum árstíma um hið sérstaka Svartahaf með viðkomu á bæði skemmtilegum og merkilegum stöðum í fjórum löndum heims og á öllum viðkomustöðum er dvalið átta til tíu tíma í senn svo fólk getur raunverulega notað tímann til að njóta eða skoða án þess að vera í stresskasti eins og oft er í slíkum siglingum. Sólina er hægt að sleikja á ströndum Búlgaríu, rölta um hina sögufrægu borgir Yalta og Odessa í Úkraínu, boðið upp á Aþenu og Istanbúl sem báðar eru snilld. Nægi það ekki er einnig hægt að dúllast á eynni Mykonos. Þetta er príma sigling.
Verð 940 þúsund krónur miðað við tvo saman. Ferðalýsingin hér.






