Hætt er við að einhverjir einstaklingar þarna úti verði kannski örlítið brúnaþungir á næstu mínútum. Sérstaklega þeir sem bókað hafa Kanaríferð sína gegnum Úrval Útsýn eða dótturfyrirtækið Sumarferðir.

Besta hótel á Ensku ströndinni samkvæmt TripAdvisor finnst á mun betri kjörum á hótelvef Fararheill en gegnum ferðaskrifstofurnar. Skjáskot

Besta hótel á Ensku ströndinni samkvæmt TripAdvisor finnst á mun betri kjörum á hótelvef Fararheill en gegnum ferðaskrifstofurnar. Skjáskot

Fararheill var að bóka flug og gistingu fyrir hóp fólks sem ætlar að dvelja tvær vikur á ensku ströndinni á Kanarí í febrúar. Þar þýðir ekkert að nískast þá sjaldan maður lyftir sér upp og suður um höf. Stefnan því tekin á betra hótel og á besta stað.

Fyrir valinu varð fjögurra stjörnu Hotel Gold by Marina sem er allglæsilegt endurgert íbúðahótel steinsnar frá Calle las Dunas strandveginum í Playa del Inglés en hótelið fær toppeinkunn hjá TripAdvisor síðan það opnaði að nýju. Morgunverður með og netið frítt.

Við vorum búin að rekast á þetta sama hótel í boði hjá Sumarferðum/Úrval Útsýn en þar kostar gisting í tveggja manna herbergi með suðursvölum yfir sama tveggja vikna tíma 286.565 á haus eða alls 573.130 á par eða hjón. Flogið fram og aftur með Primera Air.

Verð á ferð Úrval Útsýn/Sumarferða. Skjáskot

Verð á ferð Úrval Útsýn/Sumarferða. Skjáskot

Við tryggðum okkar fólki líka flug með Primera Air gegnum vef flugfélagsins en túrinn út og heim aftur kostar parið 139.920 krónur eða 69.960 á mann. Fjarri því gott verð á fluginu og hægt að komast til Kanarí á sama tíma niður í hundrað þúsund á parið með öðrum leiðum eins og gegnum Osló, Basel og London. En það er dálítið meira fyrirtæki svo 40 þúsund króna aukakostnaður fyrir beint flug þótti þess virði.

Þá færðum við okkur um set inn á hótelbókunarvef Fararheill, sem við höfum ítrekað sýnt fram á og sannað að finnur langlægsta verð á gistingu í veröldinni. Þar leituðum við uppi besta fjögurra til fimm stjörnu kostinn á Ensku ströndinni umræddan tíma og voilà. Herbergi á Hotel Gold by Marina í tvær vikur með morgunverði og svölum til suðurs fundust þar á umræddum tíma fyrir 341 þúsund krónur (sjá mynd).

Heildarkostnaður við vikurnar tvær á Gold hótelinu á Kanarí, því besta á Ensku ströndinni samkvæmt TripAdvisor, á hvert par sem um ræddi því alls 480.920 krónur. Verðmunurinn Fararheill í hag vs. Sumarferðir/Úrval Útsýn á NÁKVÆMLEGA SÖMU FERÐ 92.210 krónur.

* Hafa skal þó í huga að fólk er mun betur tryggt þegar ferðir eru bókaðar hjá ferðaskrifstofum en þegar ferðast er á eigin vegum. Slíkur aukakostnaður þó nokkur óþarfi sé um beint flug að ræða eins og hér um ræðir.


[vc_message color=“alert-success“ el_position=“last“]

Þetta er hreint ekki í fyrsta sinn sem Fararheill sýnir fram á sparnaðinn við að gera hlutina sjálf í stað þess að eiga við ferðaskrifstofur sem rukka fyrir hverja bréfaklemmu fyrir utan háa álagningu almennt. Vissulega er tæplega hundrað þúsund króna sparnaður ekki upphæð sem kannski skiptir fólk sköpum. En það forvitnilega við þetta er að við þurftum ekki einu sinni að fara krókaleiðir. Við spöruðum þessa fjármuni fyrir viðkomandi á einum sex mínútum eða svo. Það er dágott tímakaup.


[/vc_message]

[vc_cta_button title=“VANTAR ÞIG AÐSTOÐ? HAFÐU SAMBAND“ color=“btn-danger“ size=“btn-large“ icon=“wpb_heart“ target=“_self“ position=“cta_align_bottom“ call_text=“VANTAR ÞIG AÐSTOÐ?HAFÐU SAMBAND“ el_position=“last“]