Úttekt Fararheill á möguleikum landans til páskaferða á suðrænar slóðir í apríl 2014 sýndi svart á hvítu að þar er ekki um auðugan garð að gresja.
Á sama tíma og við lesum um fínustu sólarferðir frá Bretlandi, Danmörku og Noregi fyrir 20 til 30 þúsund krónur á mann þurfum við að gera okkur að góðu að borga hundrað þúsund krónur á haus fyrir skitið flug til og frá Alicante, Barcelóna eða Orlando. Alla þá staði sem við gætum hugsað okkur að hvíla lúin bein eftir dimman sólarlausan vetur.
Auðvitað er það engin tilviljun. Ferðaskrifstofurnar og flugfélögin vita mætavel að áhugi landans á heitari slóðum er mikill um páskana og leggja því duglegar en endranær á ferðir sínar.
Við sættum okkur ekki við það og hvað er þá mögulegt?
Þetta til dæmis:
- EasyJet til Basel 16. apríl, gisting eina nótt áður en haldið er áfram til Barcelóna daginn eftir. Sami pakki hafður á til baka. Frá Barcelóna þann 29. apríl og heim til Íslands frá Basel þann 30. apríl. Eðalfín tveggja vikna páskaferð og heildarkostnaður án farangurs 54. 894 krónur. Grípi fólk eina tösku með er heildarkostnaðurinn alla leiðina 68.700 krónur. Samtals á par eða hjón 137.400 krónur samanborið við 220.000 króna flugkostnað með Icelandair á svipuðum dagsetningum.
- EasyJet til Bristol 17.apríl, gisting eina nótt áður en haldið er áfram til Alicante daginn eftir. Sami pakki hafðu á til baka. Frá Alicante þann 26. apríl, gist eina nótt áður en heimflug er þann 27. apríl. Kostnaður á mann 56.464 krónur og alls 71.202 krónur með sitt hvora töskuna með alla leið. Samtals á par eða hjón 142.404 krónur samanborið við 180 þúsund króna kostnað með Wow Air á svipuðum dagsetningum.
- Norwegian til Oslóar þann 15. apríl og strax sama kvöld áfram til Alicante. Dittó á bakaleiðinni nema nú verður að gista eina nótt í norsku höfuðborginni áður en haldið er heim á leið. Kostnaður á mann þessa leið alls 72.742 krónur eða 77.942 með eina tösku meðferðis. Samtals á par eða hjón því 155.884 krónur eða 25 þúsund krónum ódýrara en beint með Wow Air á svipuðum dagsetningum.
Öll verð rétt klukkan 22:30 þann 28.nóvember 2013. Verð miðast við miðgengi þann dag.








