Það er enn á allra fyrstu stigum en Facebook var fyrir tveimur vikum að færa okkur neytendum aðeins meiri vigt en verið hefur hingað til. Brátt munu allir geta gefið fyrirtækjum sem skráð eru á facebook einkunn frá einum upp í fimm fyrir þjónustu.

Hér má sjá að ferðaskrifstofan Heimsferðir er að standa sig allbærilega að margra mati en alls ekki frábærlega
Það er töluvert jákvætt skref í þágu neytenda sem hingað til hafa ekki getað lýst yfir óánægju með fyrirtæki heldur aðeins „lækað“ eða ekki. Nú eru slík „læk“ eru að missa marks og það vita menn hjá Facebook og vilja gefa neytendum öflugra tæki til að hafa áhrif.
Einkunnagjöf hvers og eins fyrirtækis er á áberandi stað á fésbókarvef þess og með tíð og tíma verður hægt að sjá á augabragði hvort fyrirtæki er að standa sig eða ekki. Efast einhver um að ritstjórn Fararheill er hæstánægð með þessa þróun mála
Reyndar geta fyrirtækin tekið fyrir slíka einkunnagjöf, og munu væntanlega gera það strax og syrtir í álinn. En til þess þurfa þau að fjarlægja heimilisfang sitt af fésbókinni og það getur verið hægara gert en sagt.
Einkunnagjöfin er aðeins farin að sjást hjá íslenskum fyrirtækjum eins og sjá má á myndinni hér að ofan og mun fljótlega ná yfir velflest stærri fyrirtæki. Og það verður augljóst strax hvaða fyrirtæki taka ekki þátt í þessu og mun einfaldara en áður að sniðganga þau alfarið. Það eru gömul sannindi að sá sem hefur ekkert að fela hefur engu að tapa að koma til dyranna eins og hann er klæddur.







