Það er góð regla forsjálla einstaklinga að kanna verð á páskaferðum eigi síðar en um jólin og sömuleiðis að kanna verð á sumarferðum eigi síðar en um páska. Fararheill skoðaði hvað er í boði um miðjan apríl og þar er nánast ekkert um fína drætti.

Til Spánar verður ekki komist um næstu páska á því sem kallast gott verð

Til Spánar verður ekki komist um næstu páska á því sem kallast gott verð

Þá erum við fyrst og fremst að tala um verðlag en nett úttekt leiðir í ljós að um páskana sem eru árið 2014 upp úr miðjum apríl er ekkert komist suðureftir í heitari lönd á verði sem talist getur gott. Sömuleiðis eru skipulagðar ferðir stærri ferðaskrifstofa langmest þegar orðnar uppseldar eða langleiðina að klárast.

Wow Air er eina flugfélagið sem flýgur beint til Alicante sem alltaf er vinsæll áfangastaður í páskafríinu. Allnokkrar ferðaskrifstofur bjóða þangað ferðir og slatti af þeim einmitt með Wow Air. Það kann að skýra verðlag á flug á vef Wow en til Alicante er í öllu falli ekki komist fyrir páska í viku eða tvær undir 90 þúsund krónum með gjöldum og töskum með.

Tveggja vikna túr til Alicante með Wow Air um páskana kostar um 90 þúsund krónur með bókunargjaldi og farangri með.

Tveggja vikna túr til Alicante með Wow Air um páskana kostar um 90 þúsund krónur með bókunargjaldi og farangri með.

Sé litið á verð ferða til Alicante með Wow Air einum mánuði síðar í maí er meðalverð á svipuðum pakka öllu lægri eins og sjá má.

Um 30 þúsund krónum ódýrara fargjald til og frá Alicante í maí en apríl

Um 30 þúsund krónum ódýrara fargjald til og frá Alicante í maí en apríl

Þá gæti einhver hugsað sem svo að ráð sé að fara bara til Barcelóna í staðinn um páskana. Ólíkt meira þar um að vera þann tíma en í Alicante héraði. Sá hinn sami finnur vissulega nóg af ferðum í boði hjá Icelandair en prísinn er vel yfir hundrað þúsund krónur á mann báðar leiðir.

Fátt um fína drætti hér

Fátt um fína drætti hér

Fer þá að fjúka í flest skjólin um páskahátíðina en kannski, mögulega er gott verð með Icelandair til Orlando? Kíkjum á það:

Hmm. Á stöku dagsetningum er ódýrara þangað en til Barcelóna???

Hmm. Á stöku dagsetningum er ódýrara þangað en til Barcelóna???

Almennt er verð til Orlando töluvert dýrara eins og alltaf en þó eru hér merkilegar undantekningar. Strax á annan í páskum, 21 apríl, er komist út fyrir rúmar 53 þúsund krónur og heim þann 29.apríl fyrir 49 þúsund krónur rúmar. Það er sem sagt hægt að finna flug til Orlando og heim aftur á lægra verði en til Barcelóna og heim aftur. Er þó flugtíminn til og frá Orlando næstum helmingi lengri báðar leiðir en til Barcelóna.

Góð ráð enn dýrari

Fyrir þá fjölmörgu sem ekki geta hugsað sér að fara með easyJet, Norwegian eða öðrum flugfélögum og millilenda einhvers staðar áður en komist er á áfangastað er þá aðeins eftir að kanna hvort ferðaskrifstofurnar innlendu geta komið okkur til bjargar.

Því miður þarf ekki lengi að leita til að drepa þá von í brjósti. Hjá Úrval Útsýn eru ferðir í boði til Alicante en þegar þetta er skrifað er lítið eftir af ferðum

uuoa

Ferðir Úrval Útsýn til Alicante um páskana

Víst er ekki allt uppselt en hér kostar líka allra ódýrasti pakki á sæmilegu hóteli rúmar 115 þúsund krónur á mann og miðast við tvo saman. Samt öllu vænlegra en bara flugið hjá Wow eitt og sér.

Þá býður ferðaskrifstofan Heimsferðir upp á flug til Costa del Sol sem er reyndar rangnefni því flogið er til borgarinnar Jerez sem er nokkuð inn í landi og ekki á Costa del Sol í neinum skilningi. Aðeins ein ferð í boði fyrir páska og þó farið sé út 12. apríl eru aðeins örfá sæti eftir þegar þetta er skrifað.

Ekki úr miklu að moða hjá Heimsferðum heldur

Ekki úr miklu að moða hjá Heimsferðum heldur

Það getur svo sem verið að á Íslandi sé fullt af fjölskyldum sem ekki munar um 400 þúsund krónur til þess eins að fljúga með tveimur börnum í stutta afslöppun yfir páskahátíðina. Hvort sem það er eða ekki þá er það verðlag bæði út í hróa og móa.