Allt að gerast í Kaliforníu. Senn mun Icelandair hefja beint flug til San Francisco frá klakanum og bætast þar í hóp Wow Air sem hefur boðið slíkt um skeið. Síðarnefnda flugfélagið flýgur líka beint til Los Angeles sem gefur færi fyrir ferðaþyrsta að fljúga til einnar borgar og heim frá annarri.

Úthvíld á áfangastað? Leikur einn ef þú ferðast með vögnum Cabin. Mynd Cabin
Kannski erum við hér ein um það að kjósa helst alltaf að slá tvær flugur í einu höggi á erlendri grund. Ástæðan ekki aðeins sú að taka inn marga og mismunandi hluti í einum og sama túrnum heldur líka hitt að engu okkar mun nokkurn tíma veitast nægur tími til að sjá allt markvert undir sólinni.
Vissulega er vel hægt að eyða tveimur vikum í bæði Los Angeles og San Francisco og aldrei líta sama svæðið en það er engin þörf á því. Báðar borgir eiga sínar merkju minjar og forvitnilega staði og fimm, sex, sjö dagar í hvorri duga fínt til að sjá allt þetta helsta og gott betur. Þess vegna finnst okkur nær lagi að eyða viku í San Fran og viku í L.A. og leiðast ekki eitt augnablik.
En það er kannski ekki svo einfalt að gera. Það tekur jú sex stundir um það bil að aka á milli borganna tveggj sem með matar- og pissustoppum tekur megnið af heilum degi. Súrt að missa heilan dag í keyrslu. Lest er möguleiki en miði á milli er dýr, algengt verð milli átta og tíu þúsund krónur á ódýrasta farrými, og það dálítið fyrirtæki líka því það er engin lestarstöð í miðborg San Francisco. Til að komast inn á Amtrak langleiðarkerfið þarf að fara yfir flóann til Emeryville. Þá tekur flug auðvitað fræðilega aðeins eina og hálfa klukkustund en þar sem báðir flugvellirnir eru risastórir og pakkaðir mun flug líka taka lunga úr degi þegar allt er saman talið.
Neibb. Langbesta leiðin til að komast á milli er með rútufyrirtækinu Cabin. Það eru glænýjar svefnrútur sem aka á milli hverja nótt og hver og einn farþegi fær sína eigin litlu koju til afnota. Ferðalangar því frískari en Fisherman´s Friend á endastöð. Vissulega ekki ókeypis heldur; lægsta verð aðra leið kringum tíu þúsund krónur, en ekki aðeins kemur þú frísk/-ur á áfangastað heldur og sparar þér nótt á hóteli 🙂







