Makalaus forsíðugrein í Fréttablaðinu fyrir stuttu. Einhver „viðskiptablaðamaður” sem virðist varla kominn með hár á punginn kemst að því að Icelandair Group er að greiða hæstu laun sem um getur undir sólinni í þeim bransanum. Það er að verða þeim að falli.

Slæmt gengi Icelandair meðal hluthafa skýrist af háum launum að mati Fréttablaðsins. Mynd Boeing

 Á einhverjum tímapunkti í sögu Íslands hefði það fyrirtæki sem borgaði óvenju góð laun yfir línuna verið talið til bestu fyrirtækja landsins. Það er jú ekki eins og sagan sé kjaftfull af sögum af fyrirtækjum sem greiddu fólki ekki aðeins mannsæmandi laun heldur aðeins betur en það. Gerðu sem sagt extra vel við starfsfólkið sitt. Almenningur bugtaði sig og beygði fyrir forsvarsmönnum slíkra fyrirtækja hér ekki fyrir margt löngu.

En ritstjóri Fréttablaðsins, Kristín Þorsteinsdóttir, sem lengi gekk erinda megasvindlarans Pálma Haraldssonar og tók sér fimm mínútur að gera sína eigin dóttur að stórblaðamanni á Fréttablaðinu, vill ekki sjá að fólk fái laun sem duga fyrir meiru en brýnustu nauðsynjum. Eða eigum við að trúa því að tvítugur „viðskiptablaðamaður” hafi tekið upp hjá sjálfum sér að greina hlutfall launagreiðslna hjá stærstu flugfélögum heims?

Einmitt það!

Fréttin er hér fyrir áhugasama. Þar kemur fram að launakostnaður Icelandair er töluvert hærri en hjá mörgum helstu samkeppnisaðilum. Þar kemur reyndar ekkert fram um launakjör helsta samkeppnisaðila hérlendis en launakostnaður töluvert umfram það sem gerist hjá SAS, British Airways, Lufthansa, Norwegian og Finnair svo nokkur flugfélög séu nefnd.

Í grein Fréttablaðsins kemur reyndar fram neðarlega að launakostnaður hækki mun meira en ella sökum styrkingar krónu gagnvart dollar, en fyrirtækið greiðir laun í krónum meðan tekjur eru að stóru leyti í dollurum. Þessi eina staðreynd gerir útreikninga og þar með frétt Fréttablaðsins næsta bitlausa.

Önnur staðreynd sem umræddur viðskiptablaðamaður hefði getað sett á blað er sú staðreynd að það er mun dýrara að lifa á Íslandi en í Þýskalandi, Finnlandi, Bretlandi eða Danmörku. Ekki aðeins er húsnæðisverð í hæstu hæðum heldur og kostar matur og dúllerí meira hérlendis en alls staðar erlendis. Með öðrum orðum; það er ekki hægt að taka út fyrir sviga mun hærri lífskostnað á Íslandi þegar laun milli landa eru borin saman. Þá ertu strax að bera saman epli og rifsber en ekki epli og epli.

Það hefði kannski líka hjálpað unga viðskiptablaðamanninn í þessu tilfelli að kíkja á niðurstöður Fyrirmyndarfyrirækja VR árið 2018 svona í og með. Það er könnun sem gerð er meðal þúsunda starfsmanna hinna og þessara fyrirtækja landsins og þar meðal annars spurt út í launakjör og hvort fólk sé sátt við kjör sín.

Í ljós kemur að meðal stórra fyrirtækja landsins er Icelandair að borga langlélegustu launin að mati síns eigin starfsfólks. Ekki er heldur langt síðan verkföll lömuðu starfsemi flugfélagsins sökum lélegra launakjara.

Því miður er Fréttablaðið í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Enginn skyldi halda að Jón Ásgeir sé með puttana í slíku nema til að hafa áhrif. Þá geta misvísandi upplýsingar skipt sköpum…