Hmmm! Er raunverulega hægt að skottast frá Suðurnesjum alla leið til borgarinnar Dakar í Senegal fyrir rétt rúmar 60 þúsund krónur? Hljómar dálítið of gott til að vera satt.

Litlir peningar til að auglýsa en strendurnar í Senegal engu síðri en þær á Kanaríeyjum.

Á köflum reynast hlutir sem hljóma of góðir til að vera sannir raunverulega sannir. Það á sannarlega við um flugtilboð portúgalska flugfélagsins TAP sem er þessi dægrin að bjóða súpertilboð á flugi frá Vín í Austurríki alla leiðina til Senegal og sömu leið til baka en reyndar með millilendingu í hinni indælu Lissabonn.

Sá díll fæst á fjölmörgum dagsetningum gegnum flugmiðilinn Skyscanner langt fram eftir vetri niður í 295 evrur. Það gerir tæplega 42 þúsund krónur miðað við gengi dagsins.

Hvers vegna það ætti að eiga erindi við ballarhafsbúa á klakanum kann einhver að spyrja.

Jú, svo vill nú til að heil tvö flugfélög fljúga lóðbeint á milli Keflavíkur og Vínar og bæði bjóða allsæmileg fargjöld. Þau flugfélög eru Wizz Air annars vegar og Austrian Airlines hins vegar. Lægsta fargjaldið sem við finnum þegar þetta er skrifað fram og aftur kostar um 20 þúsund krónur án farangurs.

Ergo: Íslendingar komast alla leið til Senegal í Afríku þar sem sólin skín 24/7 alla daga ársins fyrir svo lítið sem 60 þúsund krónur fram og aftur.

Það, góðir lesendur, er brilljant díll alla leið til Afríku 🙂

Nánar.