Mogensen á bágt. Bágt með að halda flugvélum sínum á lofti nema til komi drjúgt fjármagn og það sem allra fyrst. Við getum hjálpað aðeins til.

Sýnum lit og björgum Wow Air. Mynd Wow Air

Fyrri hluta ársins 2012 birtum við grein hér um hvað nýtt og spennandi flugfélag Skúla Mogensen gæti nú gert til að leggja Ísland og heiminn í kjölfarið að fótum sér.

Við bentum Mogensen á að Icelandair væri að heimta einokurgjöld á ferðum á velflesta staði. Árið 2012 var algengt að borga 35 þúsund krónur aðra leiðina til London með Icelandair. Það væri instant skot í bláskeytin að bjóða betur þangað.

Við bentum Mogensen á að „ríkisflugfélagi” landsins væri slétt sama um vinsælustu áfangastaði Íslendinga sjálfra. Fyrir utan stöku leiguflug fyrir ferðaskrifstofur datt Icelandair aldrei í hug að bjóða Íslendingum beinar ferðir til Alicante, Mallorca eða Kanaríeyja í áætlunarflugi. Mark frá miðju að bjóða slíkt.

Við bentum Mogensen á að bjóða pakkaferðir, flug og hótel, sem fyrst því á þeim tíma voru fáar ferðaskrifstofur að bjóða eitthvað annað en Mallorca og Kanaríeyjar og álagning flestra vel yfir þúsund prósent miðað við erlenda aðila.

Við bentum Mogensen á að koma fram við viðskiptavini sína betur en Iceland Express Pálma Haraldssonar sem sýndi farþegum lit sirka á fimm milljón ára fresti. Flugfélag sem valdamenn hötuðu eins og pestina en Haraldsson hafði ekki vit né getu til að sýna viðskiptavinum alvöru lit þegar eitthvað bjátaði á. Því fór sem fór.

Við bentum Mogensen á að senda ferskt lið á alla áfangastaði sína og starta prontó bloggi um þá áfangastaði flugfélagsins með nýjum og ferskum punktum um hvað væri sneddí að skoða, gera, snæða og njóta. Vegna þess að ferðahandbækur koma út tveimur til þremur árum eftir að þær eru skrifaðar og eðli máls samkvæmt, er flest þá orðið úrelt sem mælt er með.

Og hver er svo niðurstaðan sex árum eftir að fyrsta rella Wow Air fór í loftið?

Wow Air bauð strax ágæt fargjöld til vinsælla áfangastaða á borð við London og Köben og síðar Alicante og Kanarí. Forráðamenn Icelandair, sem fram að fyrsta flugi Wow Air, höfðu gert sitt besta til að setja nýju flugfélagi stólinn fyrir dyrnar, fengu umsvifalausa samkeppnispillu í afturendann. Það tók þá samt sex til átta mánuði að lækka fargjöld sín til Köben og London til að bregðast við.

Mogensen fylgdi ráði okkar að starta ferðaskrifstofu. En til þess að reka þá ferðaskrifstofu réði hann gamlan þreytta aðila úr íslenska ferðabransanum. Ævintýri sem endaði með depurð rúmlega ári síðar enda viðkomandi að bjóða sama gamla og allir hinir og ekki á mikið betra verði heldur. Skömmu síðar keypti Mogensen hlut í Gaman ferðum og lét þar við sitja með skipulagðar ferðir.

Mogensen fylgdi, til að byrja með, ráði okkar að sýna hverjum einasta viðskiptavini lipurð og lit. Ekki gleyma að lengi vel fylgdi bæði handfarangur og innrituð taska með á öllum lægstu fargjöldum Wow Air. Rellurnar glænýjar, fansí auglýsingar og Mogensen sjálfur spútnikgaur með milljarða á kantinum. Þá var aðeins aðeins eitt farrými í vélum Wow Air. Allir fengu sama díl og sömu þjónustu.

Hvað gat farið úrskeiðis?

Það er ærin ástæða fyrir að til er gömul máltæki á borð við að sígandi lukka sé best og kapp sé best með forsjá.

Mogensen byrjaði fljótlega á að nískast á fluginu til Barselóna og Alicante. Flug þangað og heim aftur voru um miðja nótt með tilheyrandi veseni fyrir barnafólk. Það þarf jú ekki að borga svo há flugvallargjöld þegar lent er í Alicante klukkan þrjú að nóttu eða fljúga af stað rétt fyrir miðnætti. Allt lokað í Alicante og farþegar mega bara mikið til eiga sig.

Mogensen fór of snemma að fetta fingur út í kröfur farþega sinna. Vart liðið ár af starfsemi flugfélagsins þegar kröfur gegn flugfélaginu fóru að hrannast upp hjá Samgöngustofnun og flestum hafnað fyrirvaralaust af Wow Air.

Mogensen fór allt of snemma að stækka flugfélagið sitt. Í stað þess að kafsigla Icelandair til Köben og London með góðum fargjöldum á góðu flugi, leigði kappinn fleiri vélar og hóf samkeppni til Boston, New York og Berlín og svo koll af kolli án þess þó að hafa mikið fleiri vélar en áður. Wow Air minnti á köflum á Budweiser á barnum. Ódýr og ágætur drykkur í fimm mínútur áður en hann verður flatari en O.J.Simpson í Naked Gun.

Mogensen klikkaði seríöst á að gera ráð fyrir veseni. Flugfélagið hefur enga samninga við nein önnur flugfélög sem þýddi og þýðir enn, að ef þú átt bókað flug með Wow Air sem tefst fram úr hófi eða beinlínis fellur niður, þá er ekkert annað í boði en að fá hugsanlega endurgreiðslu eða bíða næsta flugs í nokkra daga og stundum vikur.

Mogensen gerði illt verra þegar hann fékk sem sína hægri hönd bandarískan dela sem rekinn var frá stóru þarlendu flugfélagi fyrir kúk og kanil gagnvart viðskiptavinum. Sá ekki lengi að búa til þrjú mismundandi farrými í þröngum vélum Wow Air og heimta 500 kall fyrir vatnsopa og aðstoð frá flugþjónum auk annars.

Illt verra varð að ömurlegu þegar Mogensen gaf skít í kvartanir viðskiptavina sinna. Svo mikinn skít að á síðasta ári lenti litla Wow Air í öðru sæti yfir þau flugfélög sem Bandaríkjamenn kvörtuðu mest yfir. Wow Air fallið úr sex stjörnum hjá flugvefnum Skytrax niður í þrjár stjörnur. Sömu einkunn og Iceland Express á sínum tíma. Flugfélag sem lætur indverskt símaver taka kvartanir farþega sinna. Símaver sem hefur engin völd til að breyta einu né neinu. Flugfélag sem svaraði varla kvörtunum á Twitter fyrr en við hér byrjuðum að greina frá alvarlegum kvörtunum farþega.

Fyrir að gefa viðskiptavinum langt nef og ætla sér að sigra heiminn á fimm mínútum sléttum er staðan sú fyrir hið eiturferska Wow Air, að reksturinn hangir á bláþræði. Vitiborið flugrekstrarfólk gerir ráð fyrir niðursveiflum og eða flökti á olíuverði. Ekki Wow Air. Engar varnir gegn hækkun olíugjalds og þaðan af síður varnir gegn aukinni samkeppni erlendis frá. Eigið fé nægilegt til að kaupa snakkpoka í Bónus eða hér um bil.

Klúður, sem sagt. Fyrir utan að bjóða flug aðra leið til Indlands niður í fjórtán þúsund kall án farangurs. Hvern er Wow Air að reyna að blekkja? Það heldur enginn alla leið til Indlands með seðlaveskið eitt í farteskinu.

Að því sögðu viljum við hér gjarnan að Wow Air lifi áfram. Þó vissulega séu hátt í 30 flugfélög alls að fljúga til og frá landinu þá miðast það við sumartímann. Að vetrarlagi, þegar okkur hér langar mest út, er aðeins um sex til sjö flugfélög að velja og velflest frá Evrópu.

Mogensen þarf að henda ferðum til krummaskuða á borð við Cinncinnati og Dallas og Detroit fyrir róða hið snarasta. Þetta bláfátækar borgir hvers íbúar vita varla af næsta fylki og hvað þá Evrópu. Fyrir utan að almenningur vestanhafs fær yfirleitt ekkert frí sem heitið getur.

Mogensen þarf að henda sínum bandaríska ráðsmanni fyrir róða. Feit ástæða fyrir að sá fékk reisupassann hjá sínu fyrra flugfélagi. Hann þarf að færa þjónustuverið til Íslands þar sem gott fólk er sannarlega gott fólk sem kann fjölda tungumála. Hann þarf að vera hreinskilinn við viðskiptavini sem lenda í ógöngum og greiða þeim bætur sem lenda í alvarlegum kúk og kanil. Mogensen þarf líka að hætta að vera megatöffari í íslenskum fjölmiðlum. Það lúkkar alveg en fer miður niður hjá flestum þegar hann snuprar farþega sína um lágmarksþjónustu.

Við skulum vera betri manneskjur en Mogensen og reyna að bjarga því sem bjargað verður af flugfélaginu Wow Air á sama tíma og við njótum flugs til fjarlægra landa á kostakjörum. Eins og neðantaldra fargjalda sem eru hreint fyrirtak 🙂

Einhver spenntur fyrir EDINBORG í Skotlandi?

Einhver spenntur fyrir STOKKHÓLMI í Svíþjóð?

Einhver spenntur fyrir PARÍS í Frakklandi?

Einhver spenntur fyrir KAUPMANNAHÖFN í Danmörku?

Einhver spenntur fyrir BRUSSEL í Belgíu?

 

KOMA SVO! Mogensen á það ekki skilið, en við erum betri en hann. Sá víkur jú alltaf sem vitið hefur meira ekki satt 😉