Örfá sæti laus í áramótaferð Úrval Útsýn til Tenerife á Kanaríeyjum??? Kunna Íslendingar ekki lengur að leggja saman tvo og tvo eða finnst þeim bara ótrúlega gaman að fylla vasa ítrekaðs svindlara af seðlum?
Makalaus lesning þetta kvöldið. Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn auglýsir allra síðustu sætin í áramótaferð sína til Tenerife á fésbókinni.
Ók. Byrjum á byrjuninni. Ekkert athugavert við að flýja íslenskan vetur eftir hörmulegt sumar og það Tene yfir áramótin.
Það er hins vegar verulega athugavert hvað Íslendingum virðist algjörlega slétt sama að eiga viðskipti, aftur og aftur og aftur, við fólk sem svindlar og svínar ítrekað á sama fólkinu. Í þessu tilfelli Pálma Haraldsson sem ekki aðeins svindlaði á landanum öllum um áraraðir í svindlfléttu sem yfirmaður Sölufélags garðyrkjumanna heldur og kostaði ríkið hundruð milljóna króna í gjaldþrota fyrirtækjum í kjölfar Hrunsins.

Svindlari og svínari af guðs náð og þið haldið áfram viðskiptum við manninn eins og ekkert hafi í skorist? Hvað er að?
Þetta eðalfífl er árlega að moka inn seðlum eftir margra ára svindl og svínarí af því að þú og þínir kaupið ferðir hjá Úrval Útsýn eða Sumarferðum eða Plúsferðum. Sem allar eru í eigu hins miður yndislega Haraldssonar.
Er sem sagt í lagi að svindla á ykkur og svína í áraraðir og þið komið samt aftur með skottið á milli lappa og sjoppið ferðir til Kanarí án þess að blikka auga?
Er ekki í lagi með ykkur þarna úti? Svona maður hefði verið brenndur á báli við mikla hrifningu viðstaddra fyrir aðeins hundrað árum síðan…
Farið að hugsa gott fólk. Það batnar ekkert í þjóðfélaginu ef við höldum áfram að versla við skítaplebba sem ollu Hruninu.







