Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður á Stöð 2, hefur lengi verið að. Hann hefur samt ekki lært að setja hluti í skiljanlegt samhengi fyrir Jón og Gunnu.

Alls óskiljanleg frétt Stöðvar 2 þetta kvöldið. Skjáskot
Þorbjörn er sekur um frétt á Stöð 2 og Vísi þennan daginn hvers fyrirsögn segir frá hlutafjáraukningu Skúla Mogensen í sínu eigin flugfélagi Wow Air eins og lesa má um hér.
Þar stendur orðrétt: „Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri Wow Air, jók hlutafé Wow Air um rúmlega helming fyrr á þessu ári þegar hann setti eignarhlut sinn í fraktflutningafélaginu Cargo Express ehf. inn í Wow Air. Þá breytti hann tveggja milljarða króna kröfum sínum á hendur Wow Air í hlutafé.”
Hmmm. Við hér höfum enga hugmynd um hvað þetta þýðir og varla nokkur sem á hlustar eða les nema viðskiptafræðingar og rektorar. Mogensen á hlut í flutningafyrirtæki sem hann setur inn í Wow Air og breytir tveggja milljarða króna skuldum í hlutafé???
Er þetta jákvætt og eðlilegt fyrir Wow Air? Eða er þetta merki um desperasjón? Ekkert kemur fram um það í frétt Þorbjörns.
Jamm og jæja. Þrátt fyrir skilningsleysi á viðskiptaháttum milljarðamæringa ætlum við að reyna að koma þessu yfir á skiljanlegt mannamál.
Mogensen á X verðmætan hlut í einhverju fyrirtæki sem heitir Cargo Express. Hann færir þann hlut undir hatt Wow Air. Allt skiljanlegt hingað til.
Merkilegra að hans eigið fyrirtæki skuldi honum sjálfum prívat og persónulega tvo milljarða króna!!!
Bíðum aðeins við. Hvers vegna að stofna fyrirtæki og lána svo eigin fyrirtæki? Hvers vegna setti Mogensen ekki allt sitt í fyrirtækið strax í upphafi? Hafði hann ekki trú á fyrirtækinu? Eða er þetta bara skattatrix?
Ofangreint væri ögn eðlilegra að skilja ef Wow Air væri á markaði og tugir fjárfesta ættu hlut í batterínu. En svo er ekki. Fyrirtækið er í einkaeigu Skúla Mogensen. Að Mogensen „auki hlutafé” í fyrirtækinu er því villandi. Karlinn á allt hlutaféð sjálfur.
Burtséð frá skattalegum forsendum þessara fimleika Mogensen, þá vaknar spurningin um hvers vegna hann eykur „hlutafé” og hvort það gerir flugfélag hans sterkara. Er Mogensen hræddur um eitthvað? Er hann að verja flugfélagið sitt með einhverjum hætti? Eða er þetta bara eðlilegur hlutur?
Þessum spurningum svarar frétt Stöðvar 2 alls ekki. Við hér, engir sérfræðingar, erum ekki viss heldur. Víst verða til fleiri „hlutabréf” í Wow Air þegar Mogensen bætir hlutum frá öðrum fyrirtækjum við pakkann og gefur eftir skuldir. En hverju skiptir það þegar fyrirtækið er ekki á markaði hvort Mogensen á hundrað hluti eða þúsund?
Litlu sem engu teljum við…
PS: óhætt að senda fréttamanninn á námskeið í fjölmiðlun hið snarasta. Hann er að vinna fyrir íslenskan almúga en ekki Bloomberg. Í kjölfarið óhætt að senda fréttamanninn í stærðfræði 101. Þegar þú eykur hlutafé úr 106 þúsund hlutum í 160 þúsund hluti er það ekki að auka hlutafé um helming…







